Viðskipti innlent

Friðrik, Helga Birna, Ólafur og Stefán Atli til Gallup

Atli Ísleifsson skrifar
Ólafur Elínarson, Helga Birna Brynjólfsdóttir, Friðrik Björnsson og Stefán Atli Thoroddsen hafa verið ráðin til Gallup.
Ólafur Elínarson, Helga Birna Brynjólfsdóttir, Friðrik Björnsson og Stefán Atli Thoroddsen hafa verið ráðin til Gallup. gallup
Ólafur Elínarson, Helga Birna Brynjólfsdóttir, Friðrik Björnsson og Stefán Atli Thoroddsen hafa verið ráðin til Gallup í lykilstöður hjá félaginu.

Í tilkynningu frá Gallup segir að Ólafur sé nýr sviðsstjóri markaðsrannsókna hjá Gallup, Helga Birna Brynjólfsdóttir hafi tekið við starfi sem skrifstofustjóri hjá Já og Gallup, og Friðrik Björnsson og Stefán Atli Thoroddsen séu nýir viðskiptastjórar á sviði markaðsrannsókna hjá Gallup. 

Ólafur Elínarson

Ólafur hefur starfað sem viðskiptastjóri hjá Gallup í 10 ár, verið aðferðastjóri eigindlegra rannsókna og sinnt alþjóðlegum verkefnum.  Hann er með BA gráðu í Sálfræði frá Háskóla Íslands og hefur sinnt stundakennslu í eigindlegri og megindlegri aðferðafræði bæði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Ólafur er 39 ára gamall og er kvæntur Evu Björk Valdimarsdóttur.

Helga Birna Brynjólfsdóttir

Helga Birna hefur margra ára reynslu úr atvinnulífnu og hefur starfað hjá leiðandi fjármála- og fjarskiptafyrirtækjum á Íslandi, meðal annars Símanum, Borgun og Arion banka.  Helga er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræðum frá Háskólanum í Reykjavík.  Hún er fyrrum landsliðskona í handbolta og margfaldur Íslandsmeistari með meistaraflokki Víkings. Helga Birna er 43 ára gömul og kvænt Þórhalli Ágústssyni.

Friðrik Björnsson

Friðrik er sérfræðingur í markaðsrannsóknum og starfaði hjá Háskóla Íslands á árunum 2014-2016 sem kennari í markaðsáætlanagerð, rannsóknum, tölfræði, og rannsóknum í markaðsfræðum.  Friðrik er með M.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði frá Háskóla Íslands. Friðrik er 27 ára gamall.

Stefán Atli Thoroddsen

Stefán er stofnandi og starfaði jafnframt sem framkvæmdstjóri sprotafyrirtækisins Jungle Bar. Fyrirtækið sérhæfði sig í framleiðslu og markaðsetningu matvæla, sem innihéldu skordýr.  Fyrirtækið tók meðal annars þátt í Startup Reykjavík og hlaut 3. verðlaun í Gullegginu. Ennfremur var það valið sem eitt af tíu umhverfisvænustu sprotafyrirtækjum Evrópu árið 2015 af Climate-Launchpad.  Stefán er með M.Sc. gráðu í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands.  Stefán er 30 ára gamall, nýbakaður faðir og í sambúð með Snædísi Gígju Snorradóttur,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×