Íslenski boltinn

Uppbótartíminn: FH komið í gang en hvað er í gangi hjá KR? | Myndbönd

Andri Rúnar Bjarnason var KR-ingum erfiður á KR-vellinum í gær.
Andri Rúnar Bjarnason var KR-ingum erfiður á KR-vellinum í gær. Vísir/Stefán
Hverjir áttu góðan dag og hverjir erfðan dag? Hvernig var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp sjöttu umferðina í Pepsi-deildinni á léttum og gagnrýnum nótum.

Valsmenn og Grindvíkingar komust upp að hlið Stjörnumanna á toppi Pepsi-deildar karla um Hvítasunnuhelgina en þá fór fram sjötta umferð deildarinnar. Eftir leikina eru Stjarnan, Valur og Grindavík öll með þrettán stig á toppnum.

FH-ingar unnu mikilvægan sigur á Stjörnunni en Garðbæingar hefðu með sigri verið tíu stigum á undan þeim. FH er þó bara í fimmta sætinu því báðir nýliðarnir eru ofar en Íslandsmeistararnir.

FH-ingar komust í gang en sömu sögu er ekki hægt að segja af KR-liðinu sem tapaði á heimavelli á móti Grindavík. KR hefur aðeins unnið 2 af 6 leikjum og báðir sigurleikirnir voru á móti neðstu liðum deildarinnar.

Breiðablik og Víkingur R. unnu sína leiki og komust bæði upp fyrir KR í töflunni en Vesturbæjarliðið situr í 8. sæti í landsleikjahléinu.

Sigur Reykjavíkur-Víkinga á Fjölni þýðir að útlitið er farið að dökkna hjá Vesturlandsliðunum ÍA og Víkingi Ó. Liðin hafa bara náð í þrjú stig í fyrstu sex umferðunum og eru nú fjórum stigum frá öruggu sæti.

Vísir/Stefán
Umfjöllun og viðtöl úr öllum leikjum umferðarinnar:

Valur - ÍBV 2-1

FH - Stjarnan 3-0

Víkingur Ó. - KA  1-4

ÍA - Breiðablik  2-3

KR - Grindavík 0-1

Víkingur R. - Fjölnir 2-1

Vísir/Stefán
Góð umferð fyrir ...

... FH-inga sem sýndu loksins sitt rétta andlit í sannfærandi 3-0 sigri á toppliði Stjörnunnar. FH-liðið vann ekki bara efsta liðið og skoraði þrjú mörk heldur hélt FH líka hreinu í fyrsta sinn í sumar. Heimir Guðjónsson náði að galdra fram  góða gamla FH-liðið eftir vandræði í upphafi móts og þar munaði miklu um að Atli Guðnason fór á kostum eftir rólega byrjun í sumar.

... Andra Rúnar Bjarnason sem er ekkert að láta mikla umfjöllun stíga sér til höfuðs. Fiskaði aukaspyrnuna, sem gaf honum tækifæri til að fiska vítið þar sem hann skoraði sigurmark Grindavíkur á KR-vellinum. Sex mörk í fjórum sigurleikjum Grindvíkinga í sumar.  Það er líklega enginn mikilvægari fyrir sitt lið í Pepsi-deildinni.

... nýju þjálfarana Loga Ólafsson hjá Víkingi R. og Milos Milojevic hjá Breiðabliki sem unnu báðir sína leiki í sjöttu umferðinni og hafa því hvorugur tapað í fyrstu tveimur leikjum sínum á nýjum stað. Milos hefur ennfremur unnið báða leikina með Blikana og Breiðabliksliðið hefur skorað í þeim fimm mörk.



Vísir/Stefán
Slæm umferð fyrir ...

... Willum Þór Þórsson
, þjálfara KR, sem er í miklum vandræðum með liðið sitt þessa dagana. KR þurfti vítaspyrnukeppni til að vinna 1. deildarlið ÍR í bikarnum í síðustu viku og hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu þremur deildarleikjum sínum. Annað árið í röð lítur út fyrir að KR-ingar ætli að kveðja titilbaráttuna áður en þjóðhátíðardagurinn rennur upp.

... Pétur Guðmundsson
, dómara, sem missti á einhvern óskiljanlegan hátt af því þegar Ivica Jovanovic var liggur við kominn samhliða Vladimir Tufegdzic þegar sá síðarnefndi skoraði sigurmark Víkings úr vítaspyrnu.

... varnarmenn Skagamanna
sem fengu enn á ný á sig fullt af mörkum á heimavelli. Skagamenn hafa skorað átta mörk í fyrstu fjórum heimaleikjum sínum en eru samt ennþá stigalausir á Akranesvellinum í sumar. Mótherjar þeirra hafa skorað fjórtán mörk í þessum fjórum leikjum og unnið þá alla.

Vísir/Stefán
Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Kaplakrikavelli

„Hér er dekstrað við blaðamenn. Hef vart kynnst öðru eins. Franskar, pitsur og tvær gerðir af snittum! Þetta er í alþjóðlegum klassa.“

Elías Orri Njarðarson á Akranesvelli

„Völlurinn sleipur.Vó. Blikar í sókn og Ingvar að taka sér stöðu í teignum og rennur síðan allt í einu á hausinn! ÍA ná að bjarga þessu en þarna hefði getað orðið mikil hætta á ferð.“

Jóhann Óli Eiðsson á Valsvelli

„Einar Karl með tæklingu í gegnum klofið á Punyed. Slæðir smá hendi aðeins upp. ÍBV vildu aukaspyrnu en fá ekki.“



Tryggvi Páll Tryggvason á Víkingsvelli

„Logi Ólafsson situr pollslakur í varamannaskýlinu á meðan Bjarni Guðjónsson, nýskipaður aðstoðarþjálfari hans, sér um að standa á hliðarlínunni og gefa skipanir.“

Árni Jóhannsson á KR-velli

„Fyrsta færið er Grindvíkinga og er þar að verki Andri Rúnar Bjarnason. Beitir varði boltann vel en náði ekki að halda boltanum. Grindvíkingar náðu frákastinu en Beitir fékk högg a sig þurfti á aðhlynningu að halda það hefði nú verið eitthvað ef hann myndi meiðast líka.“



Emil LyngVísir/Ernir
Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar:



Emil Lyng, KA 9

Arnþór Ari Atlason, Breiðabliki 9

Alex Freyr Hilmarsson, Víkingi R. 8

Martin Lund Pedersen, Breiðabliki 8

Darko Bulatovic, KA 8

Atli Guðnason, FH 8

Sveinn Sigurður Jóhannesson, Stjörnunni 3

Jóhann Laxdal, Stjörnunni 4

Brynjar Gauti Guðjónsson, Stjörnunni 4

Máni Austmann Hilmarsson, Stjörnunni 4

Alexis Egea, Víkingi Ó. 4

Hörður Ingi Gunnarsson, Víkingi Ó. 4

Alfreð Már Hjaltalín, Víkingi Ó. 4

Ingvar Þór Kale, ÍA 4

Hilmar Halldórsson, ÍA 4

Gylfi Veigar Gylfason, ÍA 4

Rashid Yussuff, ÍA 4

Torfi Tímoteus Gunnarsson, Fjölni 4

Bojan Stefán Ljubicic, Fjölni 4

Igor Taskovic, Fjölni  4

Gunnar Már Guðmundsson, Fjölni 4

Andri Adolphsson, Val 4

Óskar Elías Zoega Óskarsson, ÍBV 4

Felix Örn Friðriksson, ÍBV 4

Gullmark 6. umferðar
Trabant 6. umferðar
Augnablik 6. umferðar
Leikmaður 6. umferðar
120 sekúndur 6. umferðar

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×