Erlent

Fjölmiðlar mótmæla forsetanum

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Macron Frakklandsforseti ásamt eiginkonu sinni, Brigitte.
Macron Frakklandsforseti ásamt eiginkonu sinni, Brigitte. vísir/afp
Fimmtán stór frönsk fjölmiðlafyrirtæki, þar á meðal Le Monde og Le Figaro, hafa í sameiningu sent Macron Frakklandsforseta bréf þar sem þau mótmæla því að hann láti takmarka þann fjölda fréttamanna sem fái aðgang að fundum í forsetahöllinni.

Slík stjórnun grafi undan lýðræðinu, ekki síst á tímum þegar fjölmiðlum er almennt vantreyst.

Í mótmælabréfinu er einnig bent á að enginn fyrri forseta Frakklands hafi valið á milli fjölmiðla á þennan hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×