Körfubolti

Ginobili hendir sér undir feldinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ginobili var svekktur er hann gekk af vellinum í nótt.
Ginobili var svekktur er hann gekk af vellinum í nótt. vísir/getty
San Antonio Spurs er úr leik í baráttunni um NBA-meistaratitilinn og einn besti leikmaður liðsins er hugsanlega búinn að spila sinn síðasta leik.

Er það var lítið eftir af leik Spurs og Golden State í nótt stóð fólkið í stúkunni upp og söng: „Manu, Manu, Manu“.

Það vissi nefnilega að hinn magnaði Manu Ginobili var hugsanlega að spila sinn síðasta leik fyrir félagið.

„Mér finnst eins og ég geti spilað áfram. Þetta snýst samt um hvernig mér líður. Hvort ég sé til í að fara aftur í gegnum heilt tímabil,“ sagði hinn 39 ára gamli Ginobili sem ætlar að hugsa málið í smá tíma áður en hann tekur ákvörðun um framhaldið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×