Erlent

Reykbann við strætóskýli

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Bæjarfulltrúar í Boden í Svíþjóð hafa fengið nóg af reykingum.
Bæjarfulltrúar í Boden í Svíþjóð hafa fengið nóg af reykingum. NORDICPHOTOS/AFP
Bæjarfulltrúar í Boden í Svíþjóð ætla að banna reykingar við leikvelli, félagsmiðstöðvar unglinga og stoppistöðvar strætó í bænum.

Bæjarfulltrúinn Daniel Rönnbäck, sem sjálfur reykir, fékk nóg á leikvelli með börnum sín þegar hann sá foreldra og aðra sitja og reykja. 

Hann ákvað að leggja fram tillögu um reykbannið sem nú hefur verið samþykkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×