Ben Carson segir fátækt „hugarástand“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. maí 2017 14:11 „Þú verður að innræta barni þínu þankagang sigurvegara,“ sagði Ben Carson í útvarpsviðtali í gær. Vísir/AFP
Ben Carson, húsnæðismálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í útvarpsviðtali í gær að fátækt mætti rekja til ákveðins „hugarástands.“ CNN greinir frá. „Ég held að fátækt sé að miku leyti líka hugarástand,“ sagði Carson í viðtali við bandarísku útvarpsstöðina SiriusXM. „Ef þú ert með einhvern sem er í réttu hugarástandi, þá geturðu tekið allt í burtu frá viðkomandi og sett hann út á götu, og ég fullvissa þig um að eftir nokkurn tíma verður hann aftur á toppnum. Og ef þú ert með einhvern í röngu hugarástandi, gætirðu gefið honum öll auðæfi í heimi, og hann myndi vinna sér leið aftur á botninn.“ Ben Carson, sem bauð sig fram í forvali repúblikanaflokksins til embættis forseta Bandaríkjanna á síðasta ári, sagði jafnframt að foreldrar gætu kennt börnum sínum ákveðinn hugsunarhátt og myndu þannig forða þeim frá fátækt. „Þetta byggir margt á því hvað við kennum börnunum,“ sagði hann. „Þú verður að innræta barni þínu þankagang sigurvegara.“ Húsnæðismálaráðherrann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir þessi ummæli sín en margir vilja meina að fátækt sé ekki spurning um dugnað og eljusemi heldur sé hún kerfisbundið vandamál. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Carson lætur út úr sér umdeild ummæli en fyrr á árinu líkti hann flóttamönnum við þræla. Þá vakti hann einnig athygli fyrir ummæli sín um píramídana í Eygptalandi árið 2015, sem hann sagði hafa verið notaða sem geymslur undir korn.
Bandaríkin Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Fleiri fréttir Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Sjá meira