Körfubolti

LeBron skákaði Jordan en var auðmjúkur eftir leik: „Datt aldrei í hug að ég gæti náð Mike“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
LeBron James gæti orðið sá besti frá upphafi.
LeBron James gæti orðið sá besti frá upphafi. vísir/getty
LeBron James skoraði 35 stig í öruggum sigri Cleveland Cavaliers á Boston Celtics í fimmta leik liðanna í úrslitum austurdeildar NBA í nótt. Cleveland er komið í lokaúrslitin á móti Golden State Warriors þriðja árið í röð.

LeBron skoraði 35 stig í leiknum en hann vantaði 29 stig til að komast fram úr Michael Jordan sem stigahæsti leikmaður úrslitakeppni NBA frá upphafi. Það tókst með þriggja stiga körfu í fjórða leikhluta.

Þessi magnaði körfuboltamaður var auðmjúkur á blaðamannafundi eftir leik þar sem hann var spurður út í þennan áfanga og hvernig honum liði að taka svona flott met af þeim besta.

„Fyrst og fremst spila ég númer 23 út af Mike. Ég byrjaði að elska leikinn út af honum þegar ég sá hvað hann gat afrekað,“ sagði LeBron.

„Þegar þú elst upp við að horfa á Michael Jordan líturðu á hann sem Guð. Mér datt aldrei í hug að ég gæti komist fram úr honum í neinu. Ég byrjaði því að einbeita mér að því að ná öðrum leikmönnum. “

„Það hjálpaði mér að móta minn leik og það stærsta fyrir mig í dag eftir að bæta þetta met er það að ég afrekaði þetta með því að vera bara ég. Ég þarf ekki að skora til að hafa áhrif á körfuboltaleik. Ég hef alltaf viljað hafa áhrif á leikinn með öðru en að skora,“ sagði LeBron.

Hann vill ekki meina að hann sé alfarið búinn að ná Jordan á listanum yfir þá bestu en fagnar því að vera í umræðunni ásamt Jordan um þann besta frá upphafi.

„Það er bara ótrúlegt að nafnið mitt sé sagt í sömu setningu þess sem er sá besti allra tíma. Ég gerði allt eins og Mike þegar ég var lítill. Ég varð reyndar ekki sköllóttur eins og hann en það styttist í það. Það gerist samt eftir ferilinn,“ sagði LeBron James.

Blaðamannafundinn og körfuna sem kom LeBron upp fyrir Jordan má sjá hér að neðan.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×