Viðskipti innlent

Hagnaður GAMMA tvöfaldast og nam um 850 milljónum

Hörður Ægisson skrifar
Gísli Hauksson er stjórnarformaður GAMMA og á um 31 prósent hlut í félaginu.
Gísli Hauksson er stjórnarformaður GAMMA og á um 31 prósent hlut í félaginu. VÍSIR/GVA
Hagnaður sjóðastýringarfyrirtækisins GAMMA Capital Management á árinu 2016 nam 846 milljónum króna eftir skatta borið saman við 417 milljónir árið áður. Samtals námu eignir í stýringu félagsins rúmlega 115 milljörðum í árslok 2016.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá GAMMA en þar segir að eigið fé félagsins hafi numið 1.728 milljónum og eiginfjárhlutfall rúmlega 52 prósent. Heildartekjur GAMMA í fyrra voru 2.156 milljónir.

Á árinu 2016 voru tveir verðbréfasjóðir, sex fjárfestingasjóðir og 25 fagfjárfestasjóðir í rekstri hjá GAMMA. Þrír nýir erlendir sjóðir voru stofnaðir á árinu og aðrir þrír sjóðir verða opnaðir á þessu ári. 

„Uppgjör ársins sýnir að rekstur GAMMA stendur traustum fótum. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun árið 2008 og var með um 115 milljarða króna í stýringu um síðustu áramót. Rekstur sjóðanna gekk vel á síðasta ári og ávöxtun var góð í öllum helstu eignaflokkum. Skýrist sá árangur fyrst og fremst af sýn og trú GAMMA á fjárfestingum í íslenska hagkerfinu. Á sama tíma heldur viðskiptavinum áfram að fjölga,“ er haft eftir Gísla Haukssyni, stjórnarformanni GAMMA.

Í ágúst á síðasta ári fékk GAMMA sjálfstætt starfsleyfi frá fjármálaeftirliti Bretlands og þá stefnir félagið jafnframt að opnun skrifstofu í New York síðar á þessu ári. Hefur GAMMA ráðið Laurent Lavigne du Cadet til að stýra starfseminni í Bandaríkjunum en hann starfaði síðast sem ráðgjafi hjá stærstu lögmannsstofu í heimi, Denton.

Stærstu hluthafar GAMMA eru Gísli Hauksson og Agnar Tómas Möller, framkvæmdastjóri sjóða, en þeir eiga báðir um 31 prósent hlut í félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×