Fótbolti

Launahæsti leikmaður heims sakaður um rasisma

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lavezzi hefur vakið mikla reiði með uppátæki sínu.
Lavezzi hefur vakið mikla reiði með uppátæki sínu. vísir/getty
Argentínumaðurinn Ezequiel Lavezzi er í vondum málum vegna myndar sem birtist af honum á samfélagsmiðlum þar sem hann hermir eftir Kínverja.

Lavezzi spilar fyrir Hebei China Fortune í Kína og samkvæmt fréttum sem bárust í síðustu viku er hann launahæsti leikmaður heims. Lavezzi ku vera með 798.000 pund í vikulaun.

Í myndatöku sem Lavezzi fór í fyrir Hebei China Fortune sést Argentínumaðurinn brosa um leið og hann líkir eftir Kínverja.

Þetta hefur vakið mikla reiði í Kína og sumir ganga svo langt að vilja reka Lavezzi úr landi.

Ekki liggur fyrir hvort Lavezzi verði refsað á einhvern hátt. Margir furða sig einnig á því að Hebei China Fortune hafi birt myndina af Argentínumanninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×