Fótbolti

Grasshoppers aðeins tapað einu sinni í síðustu sjö leikjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar í Evrópuleik gegn KR síðasta sumar.
Rúnar í Evrópuleik gegn KR síðasta sumar. vísir/anton
Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leikinn fyrir Grasshoppers sem gerði 1-1 jafntefli við Lausanne á heimavelli í svissnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Rúnar og félagar eru í 6. sæti deildarinnar. Eftir skelfilegt gengi framan af ári hefur Grasshoppers rétt sinn hlut á undanförnum vikum og aðeins tapað einum af síðustu sjö leikjum sínum.

Rúnar, sem kom til Grasshoppers frá Sundsvall síðasta sumar, hefur verið einn besti leikmaður liðsins í vetur.

Skagfirðingurinn hefur skorað sjö mörk og gefið átta stoðsendingar í 30 deildarleikjum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×