Fótbolti

Monaco stigi frá meistaratitlinum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Skemmtikraftarnir í Monaco hafa slegið í gegn í vetur.
Skemmtikraftarnir í Monaco hafa slegið í gegn í vetur. vísir/getty
Monaco svo gott sem tryggði sér franska meistaratitilinn í fyrsta sinn í 17 ár eftir 4-0 stórsigur á Lille á heimavelli í kvöld.

Monaco þarf aðeins eitt stig úr síðustu tveimur leikjunum sem liðið á eftir til að verða meistari.

Falcao skoraði tvívegis fyrir Monaco og Bernando Silva var einnig á skotskónum. Junior Alonso skoraði svo sjálfsmark.

Monaco hefur átt frábært tímabil en auk árangursins í frönsku deildinni komst liðið í úrslit bikar- og deildarbikarkeppninnar og í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.

Monaco er með afar skemmtilegt lið en það hefur skorað 102 mörk í 36 deildarleikjum í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×