Handbolti

Alfreð fær nýjan leikstjórnanda

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zarabec er kvikur og öflugur leikstjórnandi.
Zarabec er kvikur og öflugur leikstjórnandi. vísir/getty
Kiel, þýsku bikarmeistararnir, hafa samið við slóvenska leikstjórnandann Miha Zarabec.

Zarabec skrifaði undir eins árs samning við Kiel en hann gengur til liðs við félagið í sumar.

Zarabec, sem er 25 ára, er fenginn vegna meiðsla Domagojs Duvnjak en Króatinn þarf að gangast undir aðgerð.

Zarabec kemur til Kiel frá Celje þar sem hann hefur leikið frá 2014. Zarabec er fastamaður í slóvenska landsliðinu. Hann var í liðinu sem vann til bronsverðlauna á HM í Frakklandi í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×