Fótbolti

Norrköping steinlá í bikarúrslitaleiknum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur kom til Norrköping frá Rosenborg í vetur.
Guðmundur kom til Norrköping frá Rosenborg í vetur. vísir/getty
Guðmundur Þórarinsson lék síðasta stundarfjórðunginn þegar Norrköping steinlá fyrir Östersunds, 4-1, í úrslitaleik sænsku bikarkeppninnar í dag.

Jón Guðni Fjóluson, sem er jafnan fastamaður í vörn Norrköping, gat ekki leikið með liðinu í dag vegna meiðsla.

Guðmundur kom inn á sem varamaður á 75. mínútu, í stöðunni 2-1. Östersunds bætti svo tveimur mörkum við á lokakaflanum og tryggði sér öruggan sigur.

Alfons Sampsted sat allan tímann á bekknum hjá Norrköping. Skagamaðurinn ungi, Arnór Sigurðsson, var ekki í leikmannahópi liðsins í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×