Handbolti

Arnar: Hörmulegt fyrir okkur

Gabríel Sighvatsson í Eyjum skrifar
Arnar og félagar eru úr leik.
Arnar og félagar eru úr leik. vísir/anton
Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV, var ómyrkur í máli eftir tapið fyrir Val.

„Þetta er mjög grátlegt og það eru tilfinningar að bærast innan með manni sem eru ógeðslegar. Ég þarf  að skoða leikinn í heild sinni og mínar ákvarðanatökur og hvað við erum að gera. Mér fannst fyrri hálfleikurinn vera ofboðslega flottur hjá okkur, við skorum 16 mörk á Valsarana og hefðum í raun átt að skora meira,“ sagði Arnar.

„Sóknarleikurinn var mjög góður en varnarleikurinn var það ekki en miðað við hvernig fyrri hálfleikurinn var þá var ég mjög svekktur með hvernig seinni hálfleikurinn þróaðist og hvernig sóknarleikurinn fjaraði út.“

Josip Juric Grgic fékk rautt spjald í leiknum en það virtist ekkert hafa hjálpað Eyjamönnum.

„Josip var búinn að halda þeim á floti, hann var okkur erfiður, en það koma klókir og hungraði strákar inn í staðinn. Við höfum verið í þessu að fá dæmd rauð spjöld og einhvern veginn þá töpum við alltaf leikjunum. Maður er eiginlega farinn að vona að það koma engin rauð spjöld,“ sagði Arnar.

Arnari fannst það ekki trufla sína menn mikið að vera með þá pressu á sér sem fylgir því að vera sigurstranglegra liðið.

„Mér fannst við spila þannig í 40 mínútur að það væri ekkert að trufla okkur en kannski þegar á reyndi og við þurftum að klára þetta að þá hafi þetta verið bakvið eyrað á okkur.“

Að lokum var eins og menn skorti þor og sjálfstraust og sagði Arnar að hann hefði fundið fyrir hræðslu hjá sínum mönnum.

„Ég er algjörlega sammála þér, við náðum ekki að skapa okkur færin sem við vorum búnir að gera framan af. Við spiluðum á sjö sóknarmönnum mikið af leiknum, okkur líður vel þannig og ég þarf að skoða hvort það voru mistök að byrja leikinn þannig,“ sagði Arnar.

„Þetta er hörmulegt fyrir okkur og stuðningsmenn okkar og fyrir handboltann líka, ég held að þetta sé hvergi svona eins og hérna, þannig að þetta er afskaplega sorglegt.“

Arnar vildi þá þakka Eyjamönnum fyrir tímabilið.

„Ég vil bara þakka þeim fyrir þeirra vinnu. Við settum þetta líka upp þannig að við ætluðum okkur að njóta þeirra forréttinda sem við búum við hérna að spila í þessari umgjörð og við þessar aðstæður. Þetta er ofboðslega svekkjandi og við munum eflaust gráta þetta í nokkrar vikur en við höldum áfram og þurfum að bæta okkur á öllum sviðum.“ sagði Arnar að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×