Erlent

Trump undirritar tilskipun sem heitir því að „kaupa og ráða bandarískt“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sýnir blaðamönnum nýundirritaða tilskipunina í verksmiðju Snap-On Tools í Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum í dag.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sýnir blaðamönnum nýundirritaða tilskipunina í verksmiðju Snap-On Tools í Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum í dag. Vísir/Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skrifaði í dag undir tilskipun sem endurskoðar tímabundnar vegabréfsáritanir þess til gerðar að ráða erlenda starfsmenn til faglegra starfa í Bandaríkjunum. CNN greinir frá.

Tilskipunin uppáleggur einnig bandarískum ríkisstofnunum að ráða ekki erlenda verktaka.

Trump skrifaði undir tilskipunina í heimsókn sinni í verkfæraverksmiðju í Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum í dag. Tilskipunin hefur hlotið hið óformlega heiti „Kaupum bandarískt, ráðum bandarískt“ eða „Buy American, Hire American“ en hún er liður í því að uppfylla kosningaloforð forsetans um að setja „Bandaríkin í fyrsta sæti“.

„Tilskipunin sem ég er í þann mund að undirrita mun vernda verkafólk og nema á borð við ykkur,“ sagði Trump er hann ávarpaði samkomu fólks í verksmiðjunni Snap-On Tools í Wisconsin.

Ætlað að herða reglur

Tilskipuninni er ætlað að vernda framleiðslu á varningi í Bandaríkjunum og einnig að herða hin svokölluðu H-1B-lög um vegabréfsáritanir í Bandaríkjunum. Lögin fela í sér ráðningar á faglærðum erlendum starfsmönnum í bandarísk störf.

Umsækjendum H-1B-vegabréfsáritana hefur þó fækkað umtalsvert síðan árið 2016 segir í frétt BBC um málið en með hinni nýundirrituðu tilskipun heitir ríkisstjórn Trumps því að koma í veg fyrir að kerfið verði misnotað.

Fyrirtæki í tæknigeiranum segja þó að H-1B-vegabréfsáritanir séu notaðar til að ráða hæfileikafólk í hæsta gæðaflokki. Þá hefur kerfið þó einnig verið gagnrýnt fyrir að gera bandarískjum fyrirtækjum kleift að ráða til sín ódýrt, erlent vinnuafl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×