Golf

Betri spilamennska hjá Valdísi Þóru á öðrum hring

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valdís Þóra lék á pari vallarins í dag.
Valdís Þóra lék á pari vallarins í dag. Mynd/LET/Tristan Jones
Valdís Þóra Jónsdóttir náði sér mun betur á strik á öðrum degi Terre Blanche mótsins í Frakklandi. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni.

Valdís fann sig ekki í gær þar sem hún lék á sjö höggum yfir pari.

Það gekk öllu betur hjá Skagakonunni í dag. Hún lék 36 höggum, eða á pari vallarins.

Valdís Þóra fékk þrjá fugla, einn skolla og einn tvöfaldan skolla. Í gær fékk hún tvo fugla, sjö skolla og einn tvöfaldan skolla.

Þrátt fyrir betri spilamennsku í dag komst Valdís Þóra ekki í gegnum niðurskurðinn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×