Viðskipti innlent

Skotsilfur Markaðarins: Bitlingum útbýtt hjá Isavia og óvissa hjá NSA

Ristjórn skrifar
Huld Magnúsdóttir var í síðustu viku valin hæfust úr hópi 57 umsækjenda um starf framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins (NSA).

Hún tekur við af Helgu Valfells sem sagði upp í desember í fyrra ásamt tveimur öðrum starfsmönnum NSA og stofnuðu þær þrjár sjóðinn Crowberry Capital. Samkvæmt heimildum Markaðarins er útlit fyrir enn frekari breytingar á starfsmannahópi NSA sem taldi ekki nema sex manns áður en starfsmennirnir þrír sögðu upp. Ástæðuna megi rekja til óánægju­ með þá óvissu sem hafi fylgt mannabreytingunum öllum.

Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME
Unnur Gunnars segir pass

Athygli hefur vakið hversu lítið hefur sést til Unnar Gunnarsdóttur, forstjóra Fjármálaeftirlitsins (FME), síðan fregnir bárust af kaupum þriggja vogunarsjóða og Goldman Sachs í Arion banka. Er þar um að ræða eitt umdeildasta málið sem komið hefur inn á borð FME frá hruni.

Fulltrúar stofnunarinnar mættu fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í síðasta mánuði til að ræða söluna. Unnur var þá fjarri góðu gamni og sendi Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóra FME, í sinn stað á fundinn.

Bitlingum útbýtt

Ólafur Þór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Sandgerðis og varaþingmaður Samfylkingarinnar, og Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður N1, voru kjörin ný inn í fimm manna stjórn ríkisfyrirtækisins Isavia á aðalfundi þess 23. mars.

Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Bjartrar framtíðar, þáði þá einnig bitling fyrir sín störf fyrir flokkinn þegar hún tók sæti Theódóru Þorsteinsdóttur, þingmanns Bjartrar framtíðar. Þá voru þær Heiða Kristín Helgadóttir, einn af stofnendum Bjartrar framtíðar, sem lýsti yfir stuðningi við Viðreisn fyrir kosningarnar í haust, kjörin í varastjórn ásamt Margréti Kristínu Helgadóttur, frambjóðanda Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi. Ingveldur Sæmundsdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona Sigurðar Inga í Framsókn, var einnig kjörin í varastjórn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×