Golf

Hvíti hákarlinn kemur McIlroy til varnar fyrir að spila golf með Trump | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ástralski kylfingurinn Greg Norman, betur þekktur sem Hvíti hákarlinn, sér ekkert að því að Rory McIlroy, einn besti kylfingur heims, hafi spilað golf með Donald Trump, hinum umdeilda forseta Bandaríkjanna.

Norðurírski kylfingurinn fékk mikla gagnrýni fyrir að taka hring með Trump. Hann var meðal annars kallaður fasisti og hálfviti en sjálfum kom honum gagnrýnin á óvart.

Sjá einnig:Rory: Trump er ansi góður í golfi

„Ég var bara að reyna að sýna virðingu. Er Bandaríkjaforseti hringir og vill spila þá segir maður ekki nei. Ég er ekki sammála öllu sem hann segir en að er bara þannig,“ sagði Rory um golfhringinn í byrjun mars.

Norman skilur McIlroy mæta vel enda lenti hann sjálfur í nákvæmlega eins stöðu fyrir mörgum árum síðan þegar Bill Clinton vildi taka hring með hákarlinum í Ástralíu.

„Rory fékk óréttláta gagnrýni. Ef forseti Bandaríkjanna biður þig um að spila með sér golf þá ferðu og spilar golf með forseta Bandaríkjanna. Svo einfalt er það,“ segir Norman í viðtali við BBC.

„Sjálfur fékk ég einu sinni símtal frá Hvíta húsinu og mér var tjáð að forsetinn [Bill Clinton] væri að koma til Ástralíu og vildi spila golf með mér. Ég er ekki demókrati þannig ég vildi ekki spila með honum.“

Í staðinn fyrir að hafna beiðni forsetans hringdi Norman í forvera Clintons, George Bush eldri, og leitaði ráða. Norman tjáði forsetanum fyrrverandi að hann væri ekki aðdáandi Clintons enda væri hann, eins og Bush, rebúblikani.

„Það er allt gott og blessað en þú verður að virða stöðu forseta Bandaríkjanna. Farðu og spilaðu með honum,“ sagði Bush við Norman sem hlýddi forsetanum og sér ekki eftir því í dag. „Þetta allt saman varð til þess að ég eignaðist einn minn besta vin.“

„Clinton er algjörlega frábær maður sem ég var búinn að dæma fyrirfram. Hann hringdi til dæmis reglulega í mig þegar allt í kringum Tiger Woods var að gerast. Ég var nágranni Woods og hann var alltaf að biðja mig um að fara til Tigers og tala við hann. Það eina sem ég bið alla í heiminum um er að virða stöðu forseta Bandaríkjanna,“ segir Greg Norman.

Brot úr viðtali BBC við Norman má sjá hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×