Golf

Langar þig í golf? | Nú er hægt að sjá hvaða golfvellir eru opnir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Anton
Það styttist í sumarið og golfáhugafólk er örugglega farið að dusta rykið af kylfunum sínum. Gott verður síðustu daga hefur ekkert gera annað en að auka spennuna fyrir að komast út á flatirnar.

Golfsamband Íslands fylgist vel með golfvöllum landsins og hefur birt á heimasíðu sinni yfirlit yfir hvenær sumarflatir opna á golfvöllum landsins.

Það er víða búið að opna inn á sumarflatir á golfvöllum landsins og margir kylfingar bíða spenntir eftir fregnum af opnun valla á landinu. Nokkur golfmót eru á dagskrá um helgina. Vellir á SV-horni landsins og Suðurlandi eru margir hverjir tilbúnir að taka á móti kylfingum sem vilja leika á sumarflötum.

Sem dæmi um velli sem eru opnir og eru að fara að opna á næstu dögum má nefna: Kirkjubólsvöllur í Sandgerði, Strandarvöllur á Hellu, Hólmsvöllur í Leiru, Þorlákshafnarvöllur, Húsatóftavöllur í Grindavík, Selsvöllur á Flúðum, Þverárvöllur á Hellishólum.

Það er hægt að finna yfirlit Golfsambandsins yfir golfvelli og opnunartíma þeirra með því að smella hér.

Vísir/Anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×