Börn grýttu og spörkuðu í flamengófugla í tékkneskum dýragarði Atli Ísleifsson skrifar 16. mars 2017 14:44 Flamengófuglinn sem drapst var karlkyns og metinn á um 230 þúsund krónur. CEN/TV NOVA
Þrír drengir á aldrinum fimm til átta ára spörkuðu í flamengófugla í tékkneskum dýragarði svo hann drapst. Þeir höfðu áður kastað steinum að fuglinum.Independent segir frá því að drengirnir hafi klifrað yfir girðingu og inn á lóð dýragarðsins í Jihlava og svo ráðist að fuglunum. Dýrafræðingurinn Jan Vašák segir í samtali við Prague Morning að rafvirki sem var að störfum í dýragarðinum hafi stöðvað drengina þar sem hann hafi komið að þeim að misþyrma fuglunum. Einn flamengófugl var þá dauður og annar illa særður. Starfsmenn dýragarðsins segja að þeir hafi reynt að ná drengjunum en þeim hafi tekist að flýja. Einn drengjanna hafi verið í einkennandi gulri peysu og tókst lögreglu að hafa uppi á tveimur þeirra með aðstoð upptakna úr öryggismyndavélum. Þeim þriðja tókst að sleppa undan. Martin Maláč, talsmaður dýragarðsins, segir að drengirnir hafa ekki sýnt nein merki þess að skammast sín og kann svo að fara að foreldrum þeirra verði gert að greiða bætur. Flamengófuglinn sem drapst var karlkyns og komst lífs af eftir flóð í dýragarði í Prag árið 2002 áður en hann var fluttur til garðsins Jihlava. Fuglinn var metinn á um 230 þúsund krónur. Dýragarðsstarfsmenn óttast að árás drengjanna hafi hrætt aðra fugla og að það kunni að hafa áhrif á ræktun fuglanna í garðinum. Jihlava er bær í suðurhluta Tékklands, rúmum 120 kílómetrum suðaustur af höfuðborginni Prag.
Mest lesið Neyðarlínan lýsir eftir börnum sem komu færandi hendi Innlent Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Erlent Gul viðvörun: Fyrsta trampólínið þegar fokið Veður Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Erlent Réðst í tvígang á starfsmann verslunar í Skeifunni Innlent Augljóst að fylgið er enn á verulegri hreyfingu Innlent Enginn málefnalegur ágreiningur skýri brotthvarf bæjarstjóra Innlent Ósátt með skýringar á andláti: „Dæmigert kveisubarn“ voru svörin Innlent Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Erlent Fleiri fréttir Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Skoða að leyfa árásir í Rússlandi með bandarískum vopnum Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Kínverjar æfa innrás á Taívan Níu létust á framboðsfundi Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti Mikill eldur í höfuðstöðvum Novo Nordisk Lýsa hrikalegum aðstæðum í flugi Singapore Airlines: „Það var svo mikið öskrað“ Saka Ísraela um að misbeita lögum til þess að stöðva streymi frá Gasa Æðsti klerkurinn stýrði útför íranska forsetans Lætur líklega reyna aftur á þungunarrofsfrumvarpið Rússar sagðir hafa skotið geimvopni á sporbaug Ísraelar kalla sendiherrana heim frá Noregi, Írlandi og Spáni Búist við að Noregur viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Kanna hvar Perry fékk ketamínið Æfa notkun „taktískra“ kjarnorkuvopna Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Þurfa ekki að rannsaka eiturtilræði við rússneskan andófsmann Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Sjá meira