BBC biðst afsökunar á umdeildri færslu um guðlast Bjarki Ármannsson skrifar 18. mars 2017 21:22 Frá kröfugöngu í Islamabad í vikunni þar sem kallað var eftir því að efni sem inniheldur guðlast verði fjarlægt af samfélagsmiðlum. Vísir/AFP
Breska ríkisútvarpið baðst í dag afsökunar á færslu á asískri samfélagsmiðlasíðu sinni þar sem lesendur voru spurðir hver þeim þætti „rétta refsingin“ við guðlasti eiga að vera. Færslan átti að vekja athygli á þætti ríkisútvarpsins þar sem meðal annars var fjallað um stjórnvöld í Pakistan og viðhorf þeirra gagnvart guðlasti. Þar í landi getur dauðarefsing legið við guðlasti og Nawaz Sharíf forsætisráðherra hefur kallað eftir því að tekið verði harðar á því á samfélagsmiðlum. Færsla breska ríkisútvarpsins hitti alls ekki í mark og var gagnrýnd af baráttumönnum fyrir auknum mannréttindum í Mið-Austurlöndum sem sögðu hana gefa í skyn að refsingar við guðlasti ættu einhvern tímann við.Disgraceful that @bbcasiannetwork @ShaziaAwan would ask what 'punishment' should be for blasphemy. You know people get killed for it.— Maryam Namazie (@MaryamNamazie) March 17, 2017 Í afsökunarbeiðni ríkisútvarpsins kom fram að spurningin hefði átt að vera ögrandi en að hún hefði ekki verið nógu vel orðuð. Bretar felldu bann gegn guðlasti úr gildi árið 2009 og Íslendingar árið 2015. Einn núlifandi Íslendingur hefur hlotið dóm fyrir guðlast en það var Úlfar Þormóðsson, þáverandi ritstjóri tímaritsins Spegilsins, árið 1983.
Mest lesið Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Fleiri fréttir Kanna hvar Perry fékk ketamínið Æfa notkun „taktískra“ kjarnorkuvopna Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Þurfa ekki að rannsaka eiturtilræði við rússneskan andófsmann Vitnaleiðslum lokið án framburðar Trump Yfirvöld ábyrg fyrir dauða þúsunda einstaklinga sökum mengaðs blóðs Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Aldraður eðlisfræðingur sendur í gúlagið fyrir landráð „Stöðvið stuldinn“-fáni á lóð dómara eftir árásina á þinghúsið Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Sjá meira