Innlent

Seldi ofan af sér til að borga sekt við guðlasti

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Úlfar Þormóðsson er eini núlifandi Íslendingurinn sem hefur verið dæmdur fyrir guðlast. Það var eftir útgáfu Spegilsins árið 1983.
Úlfar Þormóðsson er eini núlifandi Íslendingurinn sem hefur verið dæmdur fyrir guðlast. Það var eftir útgáfu Spegilsins árið 1983. VÍSIR/VILHELM
Eini núlifandi Íslendingurinn sem hefur verið dæmdur fyrir guðlast segir það mikilvægan sigur fyrir tjáningarfrelsið að frumvarp sem afnemur bann við guðlasti úr almennum hegningarlögum hafi verið samþykkt á Alþingi í gær. 

Það var vegna hryðjuverkaárásarinnar á ristjórnarskrifstofur franska tímaritsins Charlie Hebdo í vor sem Píratar lögðu fram frumvarp um afnám refsinga við guðlasti, en tímaritið hafði birt skopmyndir af Múhammed spámanni.

Íslendingur var síðast dæmdur fyrir guðlast árið 1983 fyrir umfjöllun í tímaritinu Speglinum. Dóminn fékk ritstjórinn Úlfar Þormóðsson. 

„Það sem var í blaðinu og þótti refsivert var frásögn af því að það væri ólöglegt að gefa börnum áfengi eins og kirkjan gerir við fermingar, og þau áhrif sem fyrsti sopinn hefur á líf mannanna,“ segir Úlfar.

Svo fór að blaðið var gert upptækt, umfangsmikil lögregluaðgerð var sett í gang til að koma í veg fyrir dreifingu þess og hlaut Úlfar dóm fyrir guðlast í hæstarétti þar sem hann var dæmdur til að greiða sekt vegna málsins eða sitja í varðhaldi.

„Ég var nú ekki settur inn. En ég bankaði upp á í Hegningarhúsinu til að fá að skoða hvernig færi um mig. Það var hvatvís kona sem opnaði og sagði að ég myndi komast að því þegar ég kæmi. Svo ég endaði á að selja ofan af mér til að geta borgað sektina,“ segir hann.

Úlfar segist þó viss um að mál hans hafi breytt ýmsu í samfélaginu.

„Ég er alveg sannfærður um það að Spaugstofan hefði verið stoppuð. Ég er líka alveg sannfærður um að Baggalútur fengi ekki að vera til ef þetta mál hefði ekki komið upp. Ég er alveg viss um það.“

Hann segir að tíðindi gærdagsins séu sigur fyrir tjáningarfrelsið.

„Þetta er ósköp svona kjánalegt, er það ekki, að það megi ekki stíða mönnum sem trúa á guð. Ég er mjög ánægður með þetta. Þetta er gott fyrir þá sem halda ofan að skrifa um eitthvað annað að þurfa ekki að detta ofan í svona pytti,“ segir Úlfar Þormóðsson. 


Tengdar fréttir

Vilja að fólk fái að gagnrýna trúarbrögð

Þingmaður Pírata hefur lagt fram frumvarp til að afnema bann við guðlasti úr almennum hegningarlögum. Hann segir ótækt að banna guðlast í vestrænu lýðræðisríki. Spaugstofumaður segir að ákvæðið ætti að vera löngu farið úr lögum.

Píratar vilja afnema bann við guðlasti

Píratar hafa lagt fram frumvarp á Alþingi um afnám ákvæðis í hegningarlögum sem bannar guðlast. Bannið sæmi ekki lýðræðisríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×