Menning

Leikgerðir sagna á sviði

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Melkorka þekkir vel glímuna við að koma efni bókar yfir á leiksvið.
Melkorka þekkir vel glímuna við að koma efni bókar yfir á leiksvið.
Ég ætla að byrja á að fjalla um leikgerðir í víðu samhengi, svo skoða ég leikgerðir í íslensku leikhúsi á undanförnum árum og sný mér svo að þremur leikgerðum sem nýlega hafa verið sýndar í Þjóðleikhúsinu, Djöflaeyjunni, Maður sem heitir Ove og Gott fólk.“ Þannig lýsir Melkorka Tekla Ólafsdóttir því efni sem hún ætlar að tefla fram á bókakaffi í Menningarhúsinu Gerðubergi annað kvöld, 22. febrúar.



Melkorka Tekla er leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins. Hún kom sjálf að leikgerð söngleiksins Djöflaeyjunnar sem var frumsýndur í september síðastliðnum og gengur enn fyrir fullu húsi. Einnig er hún búin að vinna leikgerð af Tímaþjófnum, skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, sem er í æfingum núna og verður frumsýnd eftir fimm vikur. Hún þekkir því vel glímuna við að koma efni bókar yfir á leiksvið.



Skáldsaga og leikverk eru ólík listform. Mörgum leikhúsunnendum finnst áhugavert að sjá ástsælar skáldsögur öðlast líf á leiksviðinu en öðrum finnst of mikið að slíkri aðlögun gert. Eflaust verða umræður um efnið að loknu erindi Melkorku Teklu. Bókakaffið hefst klukkan 20. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir!



Bókakaffi í Gerðubergi er hluti kaffikvölda í Gerðubergi og haldið mánaðarlega yfir vetrarmánuðina, fjórða miðvikudagskvöld í mánuði. Það er vinsæll liður í viðburðadagskrá Borgarbókasafnsins.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 21. febrúar 2017

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×