Handbolti

Haukar fá króatískan tröllkarl til að fylla í skarð Janusar Daða

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ivan Ivkovic er mættur til Hauka.
Ivan Ivkovic er mættur til Hauka. mynd/haukar
Íslandsmeistarar Hauka í Olís-deild karla í handbolta eru búnir að semja við króatísku skyttuna Ivan Ivokovic til sumars 2019 en hann hefur leik með liðinu þegar deildin fer aftur af stað í byrjun næsta mánaðar.

Þetta kemur fram á heimasíðu Hauka en meistaranir þurftu að finna sér góðan leikmann í stað leikstjórnandans Janusar Daða Smárasonar sem samdi við Álaborg fyrir HM í Frakklandi en hann klárar ekki tímabilið hér heima heldur hefur leik í dönsku úrvalsdeildinni í febrúar.

Janus Daði er búinn að vera besti leikmaður Olís-deildarinnar undanfarin misseri en með hann við stjórnvölinn á vellinum er liðið búið að lyfta Íslandsmeistarabikarnum undanfarin tvö tímabil.

Ivkovic er allt öðruvísi leikmaður en Janus Daði en hann er örvhent skytta sem er enginn smá smíði. Þessi ungi Króati er 207 cm hár og 115 kíló. Alvöru stykki. Fram kemur á heimasíðu Hauka að hann hefur spilað með unglingalandsliðinum Króatíu og einnig með liðum eins og Zagreb, Karvina, Tatran Presov og nú síðast Maribor í Slóveníu.

Haukarnir eru ekki að tjalda til einnar nætur því í sumar eiga þeir von á landsliðsmarkverðinum Björgvini Páli Gústavssyni og línumanninum Pétri Pálssyni.

Lærisveinar Gunnars Magnússonar eru í öðru sæti Olís-deildarinnar eftir 16 umferðir af 27 en eftir skelfilega byrjun á mótinu er liðið búið að vinna níu leiki í röð og er tveimur stigum á eftir toppliði Aftureldingar.

Króatíski tröllkarlinn verður væntanlega frumsýndur þegar Haukar mæta Stjörnunni í Schenker-höllinni fimmtudaginn 2. febrúar.

Ivan Ivkovic er stór strákur.mynd/haukar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×