Erlent

Carrie Fisher fékk alvarlegt hjartaáfall

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Carrie Fisher.
Carrie Fisher. Vísir/Getty
Carrie Fisher, leikkonan sem þekktust er fyrir að hafa leikið Leiu prinsessu í Star Wars myndunum fékk alvarlegt hjartaáfall í flugi þar sem hún var á leið frá London til Los Angeles. BBC greinir frá.

Frekari fregna um líðan leikkonunnar er beðið, en farið var með hana á næsta sjúkrahús við komuna til Los Angeles.  Talið er að hún hafi fengið hjartaáfallið rétt fyrir lendingu í borginni.

Fréttir herma að ástand hennar sé alvarlegt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×