Skoðun

Gjaldfrjálsa biðlistamenningu vinstri manna eða styrka stjórn Sjálfstæðisflokksins?

Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Á undanförnum árum hefur vinstri meirihlutanum í borginni  tekist með stjórnkænsku sinni að stórauka gjaldfrjálst aðgengi fólks að biðlistum.  Reyndar má segja að hin norræna velferðarstjórn jafnréttis og réttætis hafi náð viðlíka árangri á síðasta kjörtímabili.

Það er nú bara þannig að líkt og gerðist með hina norrænu velferðarstjórn jafnréttis og réttlætis, þá hefur borgarstjórnarmeirihlutanum ekki tekist að forgangsraða fjármunum til velferðarmála.  Hjá vinstri mönnum er það viðtekin venja að ef að framlög til einhvers málaflokks hækka eða uppi eru áætlanir um að hækka þau, þá byggist sú hækkun alla jafna á áætlun um  hækkun skatta og annarra opinberra gjalda. 

Áætlanir sem sjaldnast standast þar sem að slíkar hækkanir draga alla jafna  úr öllum hvötum til aukinnar verðmætasköpunar og soga smámsaman allt súrefni og drifkraft úr íslensku athafnalífi. 

Ef að við tölum um köku þ.e. svokallaða þjóðarköku í þessu sambandi þá mætti líkja því við það, að á meðan sjálfstæðismenn eru við völd , þa´er unnið að því hörðum höndum að stækka uppskrift kökunnar, að bæta við hráefnið ,  til þess að stækka sjálfa kökuna .   Vinstri mönnum dettur hins vegar aldrei neitt betra í hug en að bæta góðum slurki af lyftidufti við uppskriftina í þeirri trú að kakan stækki.

Núverandi ríkisstjórn, með ráðherra Sjálfstæðisflokksins í embættum heilbrigðsisráðherra og fjármálaráðherra  hefur hins vegar borið gæfa til þess að með aðgerðum sínum hefur þeim tekist að stækka uppskrift þjóðarkökunnar.  Þess vegna erum við á yfirstandandi kjörtíambili að horfa upp á gríðarlega aukningu fjármags til heilbrigðis og velferðarmála. 

Þess vegna hafa t.d.  biðlistar eftir brjóskloss-, augasteina- og liðskiptaaðgerðum, aðgerðum vegna kviðslits og ýmsum öðrum aðgerðum styst verulega, svo einhver dæmi séu nefnd. Auk þess sem að endurnýjunarferli tækjakosts á Landsspítala og á fleiri sjúkrahúsum er komið á góðan rekspöl, þó vissulega megi bæta verulega í. Tekist hefur að hækka laun heilbrigðisstarfsfólks verulega á kjörtímabilinu ásamt því sem að búið er að tryggja fjármagn til byggingar nýs hátæknisjúkrahúss við Hringbraut.

Það er því nokkuð ljóst að nái vinstri flokkarnir völdum hér að loknum kosningum þann 29. október næstkomandi þá muni þrátt fyrir fögur áform og loforð þeirra um „Sæluríkið Ísland“, breytast í martröðina um „Biðlistalandið Ísland“.

Hverjum einasta frambjóðanda Sjálfstæðisflokksins í þingkosningunum þann 29. október næstkomandi, er meðvitaður um það að verkefninu er hvergi nærri lokið og að enn þurfi verulega að bæta fjármagni í heilbrigðis og velferðarmál á komandi árum.  Eina tryggingin fyrir því að svo verði er að setja X við Sjálfstæðisflokkinn í alþingiskosningunum þann 29. október næstkomandi.

 




Skoðun

Sjá meira


×