Fótbolti

Afmælisbarnið Hallbera: „Það er eins gott að stelpurnar geri eitthvað fyrir mig“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í fótbolta eru einu stigi frá því að komast á EM í Hollandi á næsta ári en stigið dettur væntanlega í hús á föstudagskvöldið þegar Ísland mætir Slóveníu á Laugardalsvellinum.

Umræða var uppi fyrir leik liðsins gegn Makedóníu í sumar að þar myndi Ísland tryggja sig áfram með sigri en svo var ekki. Það fattaðist í raun ekki fyrr en á leikdegi þegar Vísir skrifaði frétt um málið.

„Við héldum að við værum komnar á EM síðast en við þurfum víst eitt stig í viðbót. Við ætlum að ná í þrjú stig á föstudaginn og tryggja okkur inn á EM,“ segir Hallbera í viðtali við Vísi.

„Það hefði orðið dálítið vandræðalegt [að fagna eftir leik]. Það var svolítið furðulegt að við héldum að þetta væri komið en það verður alveg jafngaman að tryggja þetta í hörkuleik. Leikurinn gegn Makedóníu var ekki beint skemmtilegur. Þeir sem mæta á völlinn á föstudaginn eiga von á skemmtilegum leik.“

Hallbera og Gísli Gíslason, faðir hennar, á góðri stund í París í sumar.Vísir/Vilhelm
Allt gengið upp

Íslenska liðið er á toppnum í riðlinum með fullt hús stiga og er ekki búið að fá á sig eitt einasta mark. Það vann Skotland 4-0 sem er í öðru sæti í riðlinum og Slóvena 6-0 en slóvenska liðið er í þriðja sæti.

Slóvenía er með gott sóknarlið að sögn stelpnanna en varnarleikur þess hefur verið til vandræða en það nýtti íslenska liðið sér algjörlega þegar liðin mættust síðast.

„Allt sem við lögðum upp með er búið að ganga upp. Það að fara til Skotlands og vinna 4-0 var eitthvað sem okkur dreymdi um að gera og það varð að veruleika,“ segir Hallbera.

„Slóvenía er hörkulið þó að við unnum þær 6-0 úti. Þær eru með gott lið og góða einstaklinga þannig við þurfum að hitta á sama topp dag og þegar við vorum úti.“

Hallbera fagnar marki með Fanndísi Friðriksdóttur gegn Makedóníu.Vísir/eyþór
Þrítug í dag

Stelpurnar spila á sama tíma og stórleikur Liverpool og Chelsea fer fram í ensku úrvalsdeildinni. Er einhver spurning um hvorn leikinn Íslendingar eiga að velja?

„Ég sá þetta bara í gær þegar Freysi var að nefna þetta einhverstaðar. Enska deildin verður lengi til staðar. Okkar leikur er aðeins mikilvægari viljum við halda. Fólk getur nú séð Chelsea og Liverpool bara á plúsnum. Vonandi lætur fólk þetta ekki trufla sig,“ segir Hallbera brosandi.

Bakvörðurinn magnaði fagnar þrítugsafmæli sínu í dag en hvað eru stelpurnar búnar að gera fyrir hana í tilefni dagsins?

„Fanndís [Friðriksdóttir] gaf mér kórónu sem ég var mjög sátt með. Síðan var sungið fyrir mig áðan og nú þarf ég að eyða deginum með þessum stelpum þannig það er eins gott að þær geri eitthvað fyrir mig í dag,“ segir Hallbera en fær hún EM-sæti í síðbúna afmælisgjöf á föstudaginn? „Það væri óskandi. Ég ætla að lofa því.“

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×