Innlent

Höskuldur hjólar í Sigmund Davíð vegna skrifa hans um Reykjavíkurflugvöll

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Höskuldur Þórhallsson í þingsal.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Höskuldur Þórhallsson í þingsal. vísir/anton brink
Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins gagnrýnir Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann flokksins harðlega í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Höskuldur leggur út af skrifum Sigmundar Davíðs í Morgunblaðinu í liðinni viku um Reykjavíkurflugvöll en eins og kunnugt er hefur ríkið selt Reykjavíkurborg land í Vatnsmýrinni samkvæmt samkomulagi sem þáverandi fjármálaráðherra gerði við þáverandi borgarstjóra skömmu fyrir Alþingiskosningarnar 2013.

Ýmsir hafa gagnrýnt sölu landsins og segja hana ekki standast skoðun, en þar á meðal er Sigmundur Davíð. Í grein sinni í Fréttablaðinu segist Höskuldur sammála gagnrýni vegna sölunnar á landinu en gerir „hins vegar verulegar athugasemdir við þær ávirðingar sem óneitanlega beinast að ríkisstjórn Sigurðar Inga Jónssonar, rangar söguskýringar og villandi efnistök í greininni,“ ritar Höskuldur.



Segir þingmenn Framsóknarflokksins ekki hafa komið nálægt málinu


Hann segir að ekki hafi verið um að ræða sölu af hálfu ríkisins, það er ríkisstjórnar Sigurðar Inga Jóhannssonar.

„Eingöngu var um að ræða ákvörðun núverandi innanríkisráðherra og fjármálaráðherra sem báðir tilheyra Sjálfstæðisflokknum. Hún var framkvæmd með vísan til heimildar í fjárlögum fyrir árið 2013 sem hæstaréttarlögmaðurinn og fyrrverandi dómari í Hæstarétti, Jón Steinar Gunnlaugsson, hefur gagnrýnt fyrir þær sakir að sé ekki nægjanleg heimild fyrir sölunni heldur þurfi einnig til að koma heimild í almennum lögum. Ég er sammála gagnrýni Jóns Steinars enda hafa núverandi forsætisráðherra og þingmenn Framsóknarflokksins gagnrýnt söluna harðlega. Þeir komu hins vegar hvergi að málinu þegar ákvörðunin var tekin af viðkomandi ráðherrum eins og halda mætti af því sem gefið er í skyn í greininni,“ segir Höskuldur.

Þá segir hann fullyrðingar Sigmundar Davíðs um að skilyrði hafi verið í samkomulaginu um söluna vegna landsins að horfið yrði frá því að semja um lokun neyðarbrautarinnar ótrúverðugar, ef ekki beinlínis rangar:

„Samkomulag fyrrverandi innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, og Dags B. Eggertssonar borgarstjóra, sem lá til grundvallar niðurstöðu Hæstaréttar um lokun brautarinnar, var undirritað á sama stað og á sama tíma og samkomulagið um Rögnunefndina, eins og myndir af atburðinum sýna svart á hvítu. Ef skilyrðið um að ekki yrðið samið um lokun brautarinnar hefði til að mynda komið fram í samningnum um Rögnunefndina, hefðu dómstólar aldrei fallist á samkomulagið um lokun neyðarbrautarinnar. Fullyrðingar fyrrverandi forsætisráðherra um þetta atriði eru því afar ótrúverðugar, ef ekki beinlínis rangar.“



Spyr hvers vegna Sigmundur Davíð hafi látið það viðgangast að samkomulagið var undirritað


Höskuldur segir að lokun neyðarbrautarinnar sé í raun stærsti áfanginn í því að „bola flugvellinum í burtu,“ eins og hann orðar það. Hann segist þó enn trúa því að hægt sé að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir lokun brautarinnar enda fer hún þvert á málefnasamning ríkisstjórnarinnar. Höskuldur beinir orðum sínum að Sigmundi Davíð:

„Af hverju fyrrverandi forsætisráðherra lét það viðgangast að samkomulagið um lokun neyðarbrautarinnar væri undirritað, beinlínis fyrir framan augun á honum, er algjörlega óútskýrt. Einnig hvers vegna ríkisstjórnin var ekki kölluð þá þegar saman og þess krafist að samkomulaginu yrði rift. Ef ekki hefði verið orðið við því hefði verið hægt að leggja fram þingmál til að ógilda samkomulagið eins og Hæstiréttur staðfesti í sumar að heimilt hefði verið. Þá hefði fyrrverandi forsætisráðherra verið í lófa lagið að krefjast þess að þingmál um skipulagsvald Reykjavíkurborgar, sem allur þingflokkur Framsóknarflokksins stendur á bak við, færi í atkvæðagreiðslu, því slíkt er á hans valdi. Engar slíkar aðgerðir voru framkvæmdar þótt tækifæri hefði verið til á sínum tíma.“



Höskuldur ítrekað gagnrýnt Sigmund síðustu misseri


Grein Höskuldar má lesa í heild sinni hér á Vísi en eins og kunnugt er tapaði Höskuldur naumlega fyrir Sigmundi Davíð í formannskjöri flokksins fyrir þingkosningarnar 2009. Hann hefur verið nokkuð gagnrýninn á störf formannsins, ekki síst í kjölfar Panama-skjalanna.

Höskuldur var til að mynda eini þingmaður Framsóknarflokksins sem studdi ekki tillögu Sigmundar Davíðs um að hann myndi víkja sæti sem forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson taka við því embætti. Sagðist Höskuldur hafa kosið gegn tillögunni því hún teldi ekki að hún leysti neinn vanda eins og hún var lögð fram.

Síðustu vikur og mánuði hefur Höskuldur síðan eflst í gagnrýni sinni á formanninn, ef svo má segja, en hann hefur meðal annars sagt að hann hafi aldrei kynnst viðlíka foringjadýrkun og er við lýði hjá ákveðnum hópi innan Framsóknar. Þá gagnrýndi hann Sigmund Davíð í sumar þegar formaðurinn gaf í skyn að ekkert yrði af þingkosningunum í haust. Sagði Höskuldur Sigmund setja allt í upplausn.

Höskuldur er einn af þremur sem bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð til þess að leiða lista framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi. Hinir frambjóðendurnir eru Þórunn Egilsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir.


Tengdar fréttir

Kosið verði um framtíð Reykjavíkurflugvallar

Þingmenn fjögurra flokka munu leggja fram þingsályktunartillögu um að halda skuli þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Þorsteinn Sæmundsson býst við því að vera á meðal flutningsmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×