Innlent

Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu segir mikilvægt að tryggja jafningjastarf en að það verði að vera faglegt og eftirlit með því.
Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu segir mikilvægt að tryggja jafningjastarf en að það verði að vera faglegt og eftirlit með því. Vísir/Vilhelm

Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu – félags fanga á Íslandi segir það mikið gleðiefni að félagið hafi fengið rekstrarleyfi frá Gæða og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) til að sinna félagslegri ráðgjöf.

„Við höfum alltaf unnið á faglegan hátt og þetta er eiginleg staðfesting á því,“ segir Guðmundur Ingi en félagið hefur nú leyfi til að veita félagslega ráðgjöf með vísan til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála nr. 88/2021 og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Með því að fá þetta leyfi sé tryggt að það sé eftirlit með starfseminni, það sé hægt að kvarta undan þeim til GEV og að notendum tryggð fagleg nálgun.

„Okkur finnst nauðsynlegt að það sé fylgst með öllum sem í eru í einhvers konar ráðgjöf eða stuðningi og okkur hefur fundist vöntun á því,“ segir Guðmundur Ingi og nefnir í því samhengi umgjörð um samtök eins og þeirra og áfangaheimili.

„Það þyrftu að vera skýr skilyrði og reglur til að sinna slíku. En á sama tíma verðum við auðvitað að skilja að grasrótarsamtök, eins og við, byggja upp traust og það er ofboðslega stór hópur af fólki í kerfinu sem treystir ekki stofnunum eða fólki sem hefur aldrei verið í þeirra sporum. Þá er svo mikilvægt að loka ekki á jafningjaþjónustu. Hún þarf að vera til staðar, en hún þarf að vera fagleg.“

Guðmundur Ingi segir samtökin sjálf hafa sóst eftir leyfinu.

„Starfsemin var metin. Hvað við höfum verið að gera, hvað við ætlum að gera og hvort við getum tryggt þessa þjónustu áfram. Við erum alltaf að berjast fyrir því að tryggja áframhald þjónustunnar,“ segir hann og að stuðningur ríkisins til dæmis við þau hafi verið afar lítill hingað til.

Fækka endurkomum í fangelsi

Hann segir eitt af aðalstarfi félagsins að veita þeim sem eru með tengingu við réttarvörslukerfið og fjölskyldum þeirra ráðgjöf og stuðning á jafningjagrundvelli.

„Við erum frjáls félagasamtök og allt okkar starf byggir á jafningjagrundvelli, öll okkar ráðgjöf og stuðningur, en starfið er allt faglegt,“ segir Guðmundur Ingi en félagið hefur í sínu starfi lagt áherslu á félagslega ráðgjöf, stuðning, batamiðaða nálgun, þjónandi leiðsögn og skaðaminnkun.

„Áherslan er að fækka endurkomum í fangelsi, glæpum og fordómum í samfélaginu þegar kemur að málaflokknum,“ segir hann og að um sé að ræða mikil tímamót fyrir samtökin að fá leyfið.

„Fyrir okkur og vettvangsteymi okkar sem er byggt upp af okkar sérfræðingum sem eru bæði fyrrverandi fanga sem og fagfólk úr heilbrigðiskerfinu,“ segir Guðmundur Ingi en fyrir félagið starfa hjúkrunarfræðingar og félagsráðgjafar. Saman sinni þau allt að 2.500 málum árlega.


Tengdar fréttir

„Þetta er bara rétt að byrja“

Formaður Afstöðu telur að skuggaleg ofbeldishrina innan fangelsa sé „rétt að byrja“. Úrbóta sé þörf í fangelsismálum áður en nýtt fangelsi rís á Litla-Hrauni.

„Konur eiga ekki að vera á Vernd með karlmönnum“

Konu hefur nú í fyrsta sinn verið heimilað að ljúka afplánun í Batahúsi, áfangaheimili fyrir konur sem hafa lokið afplánun dóms. Hingað til hefur þeim aðeins staðið til boða að fara á áfangaheimilið Vernd, sem er eina áfangaheimilið sem hingað til hefur staðið föngum til boða til afplánuna, og farið svo í Batahús að því loknu.

„Viðbjóðslegu“ Barnakoti á Litla-Hrauni senn skipt út

Eiginkona fanga á Litla-Hrauni segir aðstæðurnar í heimsóknarrýmum í fangelsinu ógeðslegar. Formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi, segir fjögur ný rými sem ætluð verða fjölskylduheimsóknum senn líta dagsins ljós. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×