Skoðun

Öryrki býður sig fram í kraganum

Viðar Snær Sigurðsson skrifar
Kæri lesandi ég óska hér með eftir þínum stuðning til að komast á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kraganum. Viðar Snær Sigurðsson heiti ég og er öryrki, ég hef verið í Sjálstæðisflokkinum í 24 ár. Ég hef ekki alltaf verið sáttur við þingmenn mína.

Ég er ekki sáttur við það að við skyldum fella tillögu stjórnarandstöðunar um að leiðrétta kjör aldraða og öryrkja aftur í tíman eins og allir aðrir hópar fengu. Það á ekki að mismuna einum eða neinum, og sér í lagi þeim sem minna mega sín.

Tryggingastofnun ríkissins á að tryggja öldruðum og öryrkjum mannsæmandi laun, og það á að miðast við þau meðallaun sem eru á almennum markaði en ekki þau lægstu eins og nú er gert. TR á að fara í samstarf við Virk og allir þeir sem sækja um örorku eiga að fara í gegnum Virk. Virk er óháður aðili sem metur starfsgetu fólks og veitir þeim mikinn og góðan stuðning og bíður upp á ýmis úrræði. 

TR á heldur ekki að vera bónuskerfi fyrir þá sem fá góðan lífeyrir frá lífeyrissjóðum og það á að setja skerðingarþakið í t.d 500 þúsund. þannig stuðlum við að því að veita þeim sem geta aflað sér frekari tekna kost á því og hinir sem ekki geta unnið geti lifað mannsæmandi lífi og stutt við verslun og þjónustu.

Þeir eiga þá þann sjálfsagða rétt að tilheyra þessu samfélagi okkar. Það þarf einnig að styðja við barnafjölskildur og veita þeim aukin stuðning í formi barnabóta til að stuðla að frekar fólksfjölgun á íslandi. Báðar þessar leiðir mundu leiða til aukins hagvaxtar í samfélaginu okkar, skaffa vinnu bæði í verslun og þjónustu.

Með fólksfjölgun kemur aukin samkeppni sem leiðir til lægra vöruverðs og er til hagsbóta fyrir alla.

Þetta er eflaust dýrt í upphafi en þetta mundi margsinnis skila sér til baka að nokkrum árum liðnum. Við þurfum að horfa mun lengra fram í tíman t.d 10 til 20 ár en ekki þessi 4 ár eins og alltaf er gert. Ég er bara ósköp venjulegur maður með samvisku, ég er ekki yfir neinn eða neinn hafinn og allir eru jafnir fyrir mér.

Ég mundi gera mitt allra besta til að bæta samfélag okkar allra. Ég hvet þig til að kíkja á facebook síðuna mína og kynnast mér betur. Ég þarf á ykkar stuðning að halda til að komast á þing svo ég geti látið gott af mér leiða.

Það er mikið af góðu og frábæru fólki í sjálfstæðisflokkinum þó það hafi ekki alltaf skilað sér í þinginu. Ég hvet fólk til að mæta á laugardaginn og kjósa þann frambjóðanda sem þeim lýst best á. Og ef þú ert ekki í flokknum þá kostar það ekkert að skrá sig í flokkinn.

Og þá getur þú látið skoðanir þínar í ljós og haft áhrif á stefnu flokksins. Þín rödd skiptir líka máli. Takk fyrir mig.




Skoðun

Sjá meira


×