Fótbolti

Þjóðverjar í úrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þýska liðið stillir sér upp fyrir leikinn.
Þýska liðið stillir sér upp fyrir leikinn. vísir/getty
Það verða Brasilía og Þýskaland sem mætast í úrslitaleik fótboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Ríó.

Þetta var ljóst eftir 2-0 sigur Þjóðverja á Nígeríumönnum í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld. Í þeim fyrri unnu Brasilíumenn stórsigur á Hondúrum með sex mörkum gegn engu.

Varnarmaðurinn Lukas Klostermann kom Þýskalandi í 1-0 á 9. mínútu og þannig var staðan allt þangað til mínúta var til leiksloka.

Þá skoraði Nils Petersen annað mark Þjóðverja, aðeins fjórum mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Lokatölur því 2-0, Þýskalandi í vil.

Úrslitaleikurinn fer fram á Maracana-vellinum í Ríó á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×