Allt varð vitlaust í klefanum eftir tap á móti Kolbeini og félögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2016 12:30 Lamine Sane var búinn að missa fyrirliðabandið og í gær missti hann algjörlega hausinn inn í klefa. Vísir/Getty
Bordeaux-leikmennirnir Jerome Prior og Lamine Sane tóku því afar illa þegar liðið tapaði í bikarnum á móti Nantes í gærkvöldi. Kolbeinn Sigþórsson skoraði eitt marka Nantes í dramatískum 4-3 sigri en úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu. Varnarmaðurinn Lamine Sane og markvörðurinn Jerome Prior slógust í búningsklefanum eftir leikinn og þeir hafa nú báðir verið settir í ótímabundið bann hjá félaginu. L´Equipe segir frá þessu máli í dag. Jerome Prior er tvítugur markvörður sem kom inn fyrir aðalmarkvörðinn Paul Bernardoni í þessum leik. Prior var augljóslega mjög reiður þegar hann gekk af velli og Willy Sagnol þjálfari liðsins reyndi að róa hann niður. Það gekk hinsvegar ekki betur en það að Jerome Prior og varnarmaðurinn Lamine Sane fóri að slást inn í klefa. Sane er átta árum eldri og hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu undanfarin sex tímabil. Lamine Sane hefur hinsvegar glímt við hnémeiðsli á þessari leiktíð og honum gekk illa að vinna sér sæti í liðinu eftir að hann kom til baka. Sane hefur fengið að spila bikarleikina en er ekki búinn að spila deildarleik síðan í lok nóvember. Hann var fyrirliði liðsins en er búinn að missa fyrirliðabandið. Það varð allt vitlaust í klefanum og öryggisverðir á leikvanginum þurftu á endanum að grípa í taumana til að róa menn niður. Jerome Prior og Lamine Sane voru ekki þeir einu sem misstu sig en þeir sem gengu lengst. Bordeaux gaf frá sér yfirlýsingu um málið þar sem félagið staðfesti bannið en jafnframt það að félagið muni ekki tjá sig meira um málið og að engum spurningum um það verði svarað. Varnarleikur Bordeaux hefur verið afar slakur að undanförnu en liðið hefur fengið á sig 18 mörk í síðustu 6 leikjum. Fjarvera þeirra Jerome Prior and Lamine Sane mun því ekki hjálpa til.
Fótbolti Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Fleiri fréttir Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Sjá meira