Formúla 1

Magnussen tekur sæti Maldonado hjá Renault

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kevin Magnussen snýr aftur í Formúlu 1 eftir eitt ár á hliðarlínunni.
Kevin Magnussen snýr aftur í Formúlu 1 eftir eitt ár á hliðarlínunni. Vísir/Getty
Kevin Magnussen, fyrrum ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 mun samkvæmt heimildum Autosport taka sæti Pastor Maldonado hjá Renault liðinu í Formúlu 1.

Magnussen mun samkvæmt heimildum Autosport skrifa undir samning við Renault liðið á næstu dögum. Nánari upplýsingar um liðsskipan og nafn liðsins og fleira verða veittar á kynningu í París næsta miðvikudag.

Talið er að ósætti hafi orðið á milli Renault og PDVSA, ríkisolíufyrirtækis Venesúela, sem hefur lengi verið helsti styrktaraðili Maldonado.

Líklega er þó enn hægt að bjarga samningum á milli Renault og PDVSA. Það er þó ólíklegt að svo verði. Renault virðist því hafa leitað til Magnussen.

Maldonado endar þá líklega án sætis í Formúlu 1. Hann hefur ekið fimm tímabil, þrjú með Williams liðinu og svo tvö með Lotus liðinu sem Renault var að taka yfir.

Enn eru tvö laus sæti hjá Manor liðinu, Magnussen var meðal þeirra sem til greina komu í annað þeirra.

Maldonado hefur um 46 milljón dollara styrk á bak við sig, Manor liðið gæti eflaust nýtt sér þá peninga. Hins vegar er óvíst hvort PDVSA vilji halda áfram að setja fé í Formúlu 1. Sérstaklega þegar efnahagur Venesúela er brothættur og olíuverð fer lækkandi.

Magnussen ók síðast heilt tímabil fyrir McLaren árið 2014. Dananum var svo skipt út til að búa til pláss fyrir Fernando Alonso.


Tengdar fréttir

Ricciardo fljótastur í dekkjaprófun

Daniel Ricciardo var fljótastur á Red Bull á fyrsta degi prófana hjá Pirelli. Regndekk voru prófuð á Paul Ricard brautinni í Frakklandi í dag.

Maldonado býst við betri Renault vél í ár

Pastor Maldonado, ökumaður Lotus liðsins býst við því að Renault vél ársins verði auðveldari í notkun en sú sem notuð var árið 2014, þegar Lotus notaði síðast vélar Renault.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×