Blaðamaður BuzzFeed hraunar yfir leyndan kostnað WOW Air Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. janúar 2016 23:57 „Þannig að þegar allt kemur til alls endarðu á því að kaupa flug fyrir hátt í þúsund dollara þegar þú hélst að það myndi kosta tvöhundruð dollara,“ skrifar blaðamaður BuzzFeed.
Fyrir skemmstu hóf WOW Air að auglýsa ódýr flug frá Bandaríkjunum til Evrópu. Meðal annars frá Washington til Íslands fyrir 99 dollara, tæpar 13.000 krónur, eða San Francisco til Parísar, með millilendingu í Keflavík, fyrir 149 dollara, tæpar 20.000 krónur. Blaðamaður BuzzFeed hélt að þetta hlytu að vera verð sem væru of góð til að vera sönn og ákvað að gera athugun á því. „Ég bý í Kaliforníu og horfði á tvöhundruð dollara flugmiða (rúmar 26.000 krónur íslenskar) frá vesturströndinni til Evrópu. Það er ekki neitt,“ skrifar Nicole Nguyen. „Ég komst fljótt að því WOW kemur fyrir ýmsum gjöldum til fá þig til að trúa að þú sért að fá frábært verð. Þetta er eins og að fá sér ódýrt frosið jógúrt sem endar svo á því að kosta meira en venjulegur af því að öll kurlin eru svo dýr.“ Nicole bendir á að það kosti til að mynda tvöhundruð dollara að fara frá San Francisco til Frankfurt sem sé hlægilega ódýrt. Það að koma sér til baka hins vegar sé að minnsta kosti tvöfalt dýrara. Ódýrasta flugið til baka kosti 409 dollara. „Hvað um það, 608 dollarar til Evrópu og til baka er ennþá frábært, ekki satt? Nei,“ skrifar Nicole. Blaðamaðurinn komst að því að allur handfarangur þyngri en tólf kílógrömm kostar 57 dollara (7.500 krónur) aukalega. Aðeins er ein handfarangurtaska leyfð á mann. Hver taska sem er innrituð kostar síðan 76 dollara (9.900 krónur) til viðbótar. Að auki séu sætin misdýr eftir því hvar í flugvélinni þau eru staðsett. „Þannig að þegar allt kemur til alls endarðu á því að kaupa flug fyrir hátt í þúsund dollara þegar þú hélst að það myndi kosta tvöhundruð dollara. Varið ykkur á alls kyns leyndum kostnaði,“ skrifar Nicole.
Tengdar fréttir Hægt að komast til Los Angeles fyrir 20 þúsund kall Flugfélagið WOW air hefur sölu á farmiðum til Los Angeles og San Francisco í Kaliforníu í dag. 12. janúar 2016 14:38 WOW air hefur flug til Frankfurt Flogið verður sex sinnum í viku allan ársins hring. 6. janúar 2016 09:53 Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Sjá meira
Hægt að komast til Los Angeles fyrir 20 þúsund kall Flugfélagið WOW air hefur sölu á farmiðum til Los Angeles og San Francisco í Kaliforníu í dag. 12. janúar 2016 14:38
WOW air hefur flug til Frankfurt Flogið verður sex sinnum í viku allan ársins hring. 6. janúar 2016 09:53