Flugvallarmáli borgarinnar gegn ríkinu vísað frá dómi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 14. janúar 2016 17:32 Bitbeinið Reykjavíkurflugvöllur. vísir/vilhelm
Máli sem Reykjavíkurborg höfðaði gegn íslenska ríkinu, til viðurkenningar á því að ríkinu sé skylt að efna samning aðila um lokun flugbrautar 06/24 á Reykjavíkurflugvelli og endurskoða skipulagsreglur flugvallarins til samræmis við lokun brautarinnar, hefur verið vísað frá dómi. Í kröfu borgarinnar fyrir dómi var þess farið á leit að ríkið myndi efna samninginn innan fimmtán daga frá uppkvaðningu dóms eða ellegar greiða tíu milljónir króna í dagsektir til borgarinnar. Til vara var þess krafist að viðurkennt yrði að ríkið væri skaðabótaskylt vegna vanefnda á samningi aðila. Ríkið vildi meina að í kröfu borgarinnar fælist ráðagerð um að stefndi yrði knúinn til stjórnvaldsathafna en slíkt fellur utan lögsögu dómstóla. Að auki benti lögmaður íslenska ríkisins á að deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar hafi verið fellt úr gildi sem hafi áhrif á hvort borgin eigi lögvarða hagsmuni vegna samkomulagsins. Að mati dómsins var krafa borgarinnar ósamrýmanleg ákvæðum laga um meðferð einkamála. Það væri ekki hægt að „krefjast viðurkenningar á tiltekinni skyldu stefndu samkvæmt samningi „að viðlagðri greiðslu dagsekta“.“ Til að krafan yrði dómtæk þyrfti annað hvort að líta á hana sem hreina viðurkenningarkröfu eða kröfu um að ríkið framkvæmi ákveðnar athafnir að viðurlögðum dagsektum. „Af hálfu stefnda [ríkisins] hefur því eindregið verið mótmælt að túlka megi kröfugerð stefnanda á síðarnefnda leið. […] Í ljósi þessarar afstöðu stefnda telur dómurinn sér ekki fært að gefa stefnanda kost á því að lagfæra málatilbúnað sinn að þessu leyti eða túlka kröfugerð hans á þessa leið þannig að málið væri tækt til efnisdóms á þeim grundvelli,“ segir í niðurstöðunni. Því var fyrri túlkunarkosturinn lagður til grundvallar. Að því virtu var það niðurstaða dómsins að dómur, þar sem aðalkrafa borgarinnar stæði óbreytt, hefði nokkur sjálfstæð réttaráhrif og þá hver þau ættu að vera. Því væri í raun verið að krefja dóminn um álit hans um lagalegt álitaefni. Af þeirri ástæðu og sökum vanreifunar á kröfu borgarinnar var málinu vísað frá dómi.
Tengdar fréttir Flugvallarskipulag fellt úr gildi vegna formgalla Deiliskipulag sem fól í sér brotthvarf þriðju flugbrautar Reykjavíkurflugvallar hefur verið fellt úr gildi. 17. desember 2015 19:00 Sigmundur kallar aðalskipulag borgarinnar græðgisvæðingu Ætlar ekki friða flugvöllinn og segist sannarlega ekki ganga í takt við stefnu borgarinnar. 23. nóvember 2015 16:02 Styðja að borgin verði svipt valdi yfir flugvelli Bæjarráð Fljótsdalshéraðs, en þar er Egilsstaðaflugvöllur, samþykkti í dag að lýsa yfir stuðningi við lagafrumvarp þess efnis að skipulagsvald Reykjavíkurflugvallar verði í höndum ríkisvaldsins, líkt og gildir um Keflavíkurflugvöll. 11. maí 2015 21:15 Innanríkisráðherra segir Reykjavíkurflugvöll verða óbreyttan um ófyrirséða framtíð Ólöf Nordal segir að Reykjavíkurflugvöllur verði óbreyttur þar til önnur lausn á flugvallarmálum í Reykjavík finnist. 20. nóvember 2015 18:37 Rögnunefndin telur Hvassahraun besta kostinn fyrir flugvöll Telur nefndin að allir þeir staðir sem skoðaðir voru geti rúmað þá starfsemi sem nú er í Vatnsmýrinni. 25. júní 2015 14:13 Mest lesið Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Erlent Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Innlent Brutust inn en gripu í tómt Innlent McKellen heill á húfi Erlent Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Innlent Ian McKellen féll af sviði og var fluttur á sjúkrahús Erlent Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Erlent Pútín heimsækir Kim Erlent Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Innlent Lægð nálgast landið Veður Fleiri fréttir Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Brutust inn en gripu í tómt Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Kringlan lokuð til fimmtudags Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Sjá meira
Flugvallarskipulag fellt úr gildi vegna formgalla Deiliskipulag sem fól í sér brotthvarf þriðju flugbrautar Reykjavíkurflugvallar hefur verið fellt úr gildi. 17. desember 2015 19:00
Sigmundur kallar aðalskipulag borgarinnar græðgisvæðingu Ætlar ekki friða flugvöllinn og segist sannarlega ekki ganga í takt við stefnu borgarinnar. 23. nóvember 2015 16:02
Styðja að borgin verði svipt valdi yfir flugvelli Bæjarráð Fljótsdalshéraðs, en þar er Egilsstaðaflugvöllur, samþykkti í dag að lýsa yfir stuðningi við lagafrumvarp þess efnis að skipulagsvald Reykjavíkurflugvallar verði í höndum ríkisvaldsins, líkt og gildir um Keflavíkurflugvöll. 11. maí 2015 21:15
Innanríkisráðherra segir Reykjavíkurflugvöll verða óbreyttan um ófyrirséða framtíð Ólöf Nordal segir að Reykjavíkurflugvöllur verði óbreyttur þar til önnur lausn á flugvallarmálum í Reykjavík finnist. 20. nóvember 2015 18:37
Rögnunefndin telur Hvassahraun besta kostinn fyrir flugvöll Telur nefndin að allir þeir staðir sem skoðaðir voru geti rúmað þá starfsemi sem nú er í Vatnsmýrinni. 25. júní 2015 14:13