Erlent

Palin styður framboð Trump

Bjarki Ármannsson skrifar
Sarah Palin, fyrrverandi ríkisstjóri Alaska, er með umdeildustu stjórnmálamönnum Bandaríkjanna.
Sarah Palin, fyrrverandi ríkisstjóri Alaska, er með umdeildustu stjórnmálamönnum Bandaríkjanna. Vísir/AFP
Sarah Palin, fyrrverandi ríkisstjóri Alaska og varaforsetaframbjóðandi John McCain árið 2008, hefur lýst yfir stuðningi við forsetaframboð auðkýfingsins Donald Trump. Palin er áhrifamesti einstaklingurinn innan Repúblikanaflokksins bandaríska sem lýsir yfir stuðningi við nokkurn frambjóðanda.

„Það er mikill heiður að fá stuðningsyfirlýsingu frá Sarah,“ segir í tilkynningu frá Trump. „Hún er vinur og gæðablóð sem ég ber mikla virðingu fyrir. Ég er stoltur af því að njóta stuðnings hennar.“

Palin nýtur gríðarmikillar hilli meðal evangelískra Bandaríkjamanna og meðal hinnar svokölluðu Teboðshreyfingar, sem boða mjög frjálsleg viðhörf í ríkisfjármálum og andstöðu við innflytjendur.

Fylgi Trump hefur dregist saman undanfarna mánuði en stuðningsyfirlýsing Palin mun sennilega hjálpa honum í Iowa-ríki, þar sem fyrsta forkosning í vali á forsetaefni Repúblikana fer brátt fram.


Tengdar fréttir

Hagræddu sannleikanum að venju

Sjöttu kappræður forsetaframbjóðenda Repúblikana fóru fram í gær þar sem sjö fylgismestu frambjóðendur Repúblikana deildu.

Ræða að banna Trump

Breskir þingmenn deila nú um að meina Donald Trump að koma til Bretlands vegna ummæla hans og tillagna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×