Lífið

Hárprúður og kafloðinn Jóhannes Haukur

Guðrún Ansnes skrifar
Jóhannes gengur nú um göturnar alskeggjaður. Hann segir vissulega kost að skeggið haldi á honum hita í íslensku haustgolunni, en hann heldur utan til Írlands von bráðar og lýkur þar með tökum á Game of Thrones.
Jóhannes gengur nú um göturnar alskeggjaður. Hann segir vissulega kost að skeggið haldi á honum hita í íslensku haustgolunni, en hann heldur utan til Írlands von bráðar og lýkur þar með tökum á Game of Thrones. Vísir/Pjetur
„Já, þetta er nú bara eitthvað sem búið er að ágerast, ég hef ekki þurft að hafa mikið fyrir þessum vexti þannig séð,“ segir leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson, sem nú skartar kafloðnu andliti og síðu faxi. Ástæðu þessa hárvaxtar segir Jóhannes tökur hinna vinsælu þátta Game of Thrones en hann fer með hlutverk í sjöttu seríu þáttanna, sem nú er verið að taka upp á Írlandi um þessar mundir.

„Tökunum lýkur í október, svo ég verð að minnsta kosti út október svona skeggjaður, en svo fær þetta líklega að fjúka, “ segir Jóhannes, og bætir við að honum þyki þetta smart, en að það geti verið bölvað bras að halda skegginu í skefjum.

„Ég þarf að bera í þetta olíu og eyða hellings tíma í alls konar umhirðu. Þá festist dálítið í þessu matur, og getur verið heldur ósnyrtilegt. En litla stráknum mínum finnst einmitt frábært að grafa höndunum sínum inn í skeggið, og það vill oft verða með litla fingur að þeir eru klístraðir. Það getur verið frekar sársaukafullt,“ útskýrir Jóhannes með tilþrifum.

Jóhannes segist þó alsæll með þessi forréttindi sem leikarahlutverkið hefur í för með sér, þar sem honum leyfist að prófa alls kyns útfærslur af hárgreiðslum án þess að fólk dæmi hann sem persónu of harkalega. Hann hafi til að mynda prófað að vera sköllóttur og með aflitaðan hanakamb.

„Samfélagið er svo fljótt að dæma og gera athugasemdir við svona breytingar, og þá er ágætt að geta gert það undir formerkjum vinnunnar. En auðvitað ætti maður bara að geta aflitað á sér hárið og græjað á sig hanakamb án þess að einhver væri að skipta sér af því sérstaklega.“

Aðspurður um aðkomu sína að Game of Thrones verður Jóhannes þögull sem gröfin. „Ég get ekkert sagt, það hvílir rosalega mikil leynd yfir þessu öllu, og sem dæmi má nefna að ég fæ ekki handrit af þáttunum í hendurnar, ég veit ekkert hvað er að gerast. Ég fæ rétt svo mínar línur og svo er dulnefni yfir þann sem ég er að leika á móti. Þetta kemur sumsé aldrei í ljós fyrr en ég mæti á settið.“

Þessi mikla leynd sem Jóhannes talar um er ekki að ástæðulausu, en nú er svo komið að þættirnir eru á sama stað og bækurnar, svo raunverulega enginn veit hvað gerist næst. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu líka. Sjálfur hafði ég aldrei séð þessa þætti fyrr en ég fór í prufur, þá tók ég þetta á einu bretti. Konan mín hafði legið yfir þessu, lesið bækurnar og séð þættina, svo hún fór yfir þetta með mér. Hún var svona uppflettirit fyrir mig. Fólk ætti eigin­lega að fá hana til að horfa með sér á þessa þætti ef einhver á eftir að sjá þetta,“ segir Jóhannes glettinn að lokum og strýkur yfir skeggið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×