Viðskipti erlent

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill mun meiri skuldaafskriftir fyrir Grikkland

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gríska ríkisstjórnin hefur lengi farið fram á skuldaafskriftir en talað fyrir daufum eyrum í Evrópu. Skýrsla AGS nú þykir því ákveðinn sigur fyrir Grikki.
Gríska ríkisstjórnin hefur lengi farið fram á skuldaafskriftir en talað fyrir daufum eyrum í Evrópu. Skýrsla AGS nú þykir því ákveðinn sigur fyrir Grikki. vísir/epa
Í skýrslu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerði um skuldastöðu Grikklands fyrir fund leiðtoga Evrópusambandsins um helgina eru færð rök fyrir því að sjóðurinn muni ekki taka þátt í því að veita Grikkjum þriðja neyðarlánið, nema skuldir gríska ríkisins verði afskrifaðar mun meira en ríkisstjórnir í Evrópu eru tilbúnar að samþykkja.

„Skuldir gríska ríkisins verða aðeins sjálfbærar til lengri tíma ef hluti þeirra er afskrifaður. Afskriftirnar þurfa að vera mun meiri en Evrópa hefur viljað hingað til,“ segir meðal annars í skýrslunni.

Samkvæmt reglum AGS má sjóðurinn ekki taka þátt í því að veita neyðarlán ef skuldir ríkis eru taldar ósjálfbærar og ekki er talið líklegt að það muni fjármagna sig aftur á skuldabréfamarkaði.

AGS hefur farið á svig við þessar reglur sínar þegar Grikklandi hafa verið veitt neyðarlán, en skýrslan gefur til kynna að sjóðurinn ætli ekki að gera slíkt nú.

Tsipras vildi AGS út úr Grikklandi

Þátttaka AGS í þriðja neyðarláninu sem samþykkt var að veita í gærmorgun gegn miklum aðhaldsaðgerðum í Grikklandi er afar mikilvæg í augum Þýskalands, og annarra í evruhópnum, sem stutt hafa sjónarmið Þjóðverja við borðið.

Mun þátttaka AGS hafa verið á meðal þess sem Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, voru hvað mest ósammála um þar sem Tsipras vildi AGS út úr Grikklandi.

Merkel stóð hins vegar fast á sínu og sagði Tsipras að það yrði ekki veitt neitt neyðarlán ef Grikkir samþykktu ekki þátttöku AGS. Þar með myndi Grikkland yfirgefa evrusamstarfið svo Tsipras lét undan.

Blaut tuska framan í ráðamenn í Berlín

Gríska ríkisstjórnin hefur lengi farið fram á skuldaafskriftir en talað fyrir daufum eyrum í Evrópu. Skýrsla AGS nú þykir því ákveðinn sigur fyrir Grikki og hafa fjölmiðlar í Grikklandi kallað hana blauta tusku framan í ráðamenn í Berlín.

Líklegt þykir að skýrslan muni hrista upp í umræðunni í Þýskalandi varðandi það hvort yfirhöfuð eigi að lána Grikkjum meira fé. Fjármálaráðherra Þýskalands, Wolfgang Schäuble, sagði í dag að ýmsir í þýsku ríkisstjórninni teldu það heillavænlegra að Grikkland færi úr evrusamstarfinu tímabundið en að veita ríkinu nýtt lán.

Er það öfugt við það sem að kanslarinn vill en Merkel barðist hart fyrir samkomulaginu sem náðist á mánudag og virðist vera tilbúin til að gera ýmislegt svo halda megi Grikkjum í evruhópnum, þó hún hafi reyndar hingað til ekki viljað afskrifa skuldir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×