Viðskipti innlent

Ingólfur Helgason „ekkert aðal plottarinn í þessu“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ingólfur Helgason (til hægri) og Grímur Sigurðsson, lögmaður Ingólfs, til vinstri.
Ingólfur Helgason (til hægri) og Grímur Sigurðsson, lögmaður Ingólfs, til vinstri.
Verjandi Ingólfs Helgasonar, Grímur Sigurðsson, fór í dag fram á að ákærunni á hendur honum í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings verði vísað frá dómi. Ingólfur var forstjóri bankans á Íslandi og er ákærður fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik vegna viðskipta með hlutabréf í bankanum.

Er frávísunin meðal annars byggð á því að brotið hafi verið gegn rétti Ingólfs til að velja sér verjanda. Jóhannes Bjarni Björnsson var upphaflega verjandi Ingólfs en var settur af þar sem ákæruvaldið gat ekki útilokað að hann yrði kallaður til sem vitni í málinu. Jóhannes var þó aldrei kallaður til sem vitni en hlerað símtal hans við Bjarka Diego, einn af ákærðu í málinu, er á meðal gagna málsins.

Grímur sagði svo að það Ingólf bæði dóminn um að byggja ekki á „svokallaðri eftirhyggju“:

„Það verður að meta þá háttsemi sem átti sér stað á grundvelli þeirra þjóðfélagsviðhorfa og lagatúlkunar sem var uppi á þeim tíma en ekki á grundvelli þeirra þjóðfélagsviðhorfa sem eru uppi nú.“

Telur símhleranir sönnurgagn um ekki neitt

Þá sagði verjandinn að halda yrði allar grundvallarreglur réttarríkisins í heiðri, sem hann telur að hafi ekki verið gert, og gerði í framhaldinu alvarlega athugasemdir við framgöngu ákæruvaldsins í málinu.

Gerði Grímur að umtalsefni símhleranir sem gerðar voru eftir að menn fengu réttarstöðu sakbornings og sagði þær „ekki sönnunargagn um neitt.“ Þá gerði hann athugasemdir við leiðandi spurningar ákæruvaldsins sem hann sagði oft á tíðum hafa verið studdar röngum fullyrðingum.

„Þá gerir ákærði alvarlegar athugasemdir við málflutning ákæruvaldsins. Þar var í mörgum tilvikum farið rangt með staðreyndir og vísað með ónákvæmum og óábyrgum hætti í gögn málsins.“

Rætt um vald Ingólfs

Til vara er farið fram á að Ingólfur verði sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins. Byggist sýknukrafan á því að Ingólfur hafi ekki verið í yfirstjórn bankans á ákærutímabilinu. Hann hafi því ekki stjórnað bankanum heldur aðeins starfsemi hans Kaupþings á Íslandi.

Hlutverk Ingólfs hafi því verið að sinna og hafa umsjón með þeirri starfsemi sem fór fram hér á landi. Næsti yfirmaður hans var Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings samstæðunnar.

„Það er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hlutverk eða vald Ingólfs Helgasonar hafi verið meira en þetta,“ sagði verjandi hans. Máli sínu til stuðnings vísaði hann í nokkur símtöl sem hleruð voru við rannsókn málsins.

Greyið Ingólfur hafi engu ráðið

Í símtölunum segir Einar Pálmi Sigmundsson, sem var forstöðumaður eigin viðskipta Kaupþings og er einnig ákærður í málinu, um Ingólf að hann sé maðurinn sem gefi honum (Einari) skipanir en hann sé ekki maðurinn sem taki neinar ákvarðanir. Þá sé Ingólfur „ekkert aðal plottarinn í þessu.“

Grímur fór líka yfir nokkur ummæli Frosta Reys Rúnarssonar, sem var forstöðumaður hjá verðbréfamiðlun Kaupþings og var á meðal vitna í málinu. Í einu símtali segir Frosti meðal annars:

„Maður horfir líka á greyið Ingólf Helgason [forstjóra Kaupþings á Íslandi] sem að náttúrulega réð aldrei neinu í þessum blessaða banka.“

Í öðru símtalanna segist Frosti hafa “pínu áhyggjur af Golla en ég held að flestir viti að Ingólfur Helgason réð engu í bankanum.” Stuttu síðar í sama símtali segir Frosti svo:

„Hann tók ekki eina einustu ákvörðun.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×