Íslenski boltinn

Kristján Flóki biður Blika afsökunar

Kristján Flóki í leik með FH.
Kristján Flóki í leik með FH. mynd/hafliði
Kristján Flóki Finnbogason, Breiðablik og Magnús Agnar Magnússon, umboðsmaður Kristjáns, sendu frá sér sameiginlega fréttatilkynningu í kvöld.

Í henni er rakin atburðarrásin í kringum félagaskipti leikmannsins sem Blikar lýstu yfir að væri á leið til félagsins.

Viku síðar skrifaði hann svo undir hjá FH eftir að hafa snúist hugur. Kristján Flóki biður Blika afsökunar á því.

Fréttatilkynningin

Vegna fréttaflutnings um félagaskipti Kristjáns Flóka Finnbogasonar er rétt að eftirfarandi komi fram:

 

Þann 16. mars 2015 gengu Breiðablik og FC Köbenhavn frá samningi um félagskipti Kristjáns Flóka í gegnum umboðsskrifstofu leikmannsins.

 

Samdægurs samþykkti Kristján Flóki samninginn munnlega og var það staðfest í tölvupóstsamskiptum og á fundi milli félagsins og umboðsskrifstofu hans að hann myndi ganga í raðir Breiðabliks.

 

Þegar það lá fyrir samþykktu allir hlutaðeigandi að standa sameiginlega að fréttatilkynningu þar sem tilkynnt yrði um félagskipti Kristjáns Flóka í Breiðablik í fjölmiðlum.

 

Ákveðið  var að undirrita skriflegan samning síðar þann sama dag, en leikmaðurinn var þá staddur í Danmörku. Úr því varð þó ekki þar sem Kristjáni Flóka snérist hugur og ákvað hann í framhaldinu að gerast leikmaður FH.

 

Kristjáni Flóka þykir leitt að hafa skipt um skoðun og biður forsvarsmenn, starfsfólk og stuðningsmenn Breiðabliks innilega afsökunar á þessum málalokum og óskar þeim góðs gengis á knattspyrnuvellinum í sumar.

 

Með yfirlýsingu þessari telst máli þessu lokið og munu málsaðilar ekki tjá sig frekar um það við fjölmiðla.

 

 Virðingarfyllst,

Borghildur Sigurðardóttir, formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks

Magnús Agnar Magnússon, meðeigandi Totalfootball

Kristján Flóki Finnbogason


Tengdar fréttir

Arnar Grétars: Ég er ekkert hoppandi kátur

"Hvað á maður að segja?," voru fyrstu viðbrögð þjálfara Breiðabliks, Arnars Grétarssonar, við því að Kristján Flóki Finnbogason væri búinn að semja við FH.

Mamman lauk málinu

Einu undarlegasta máli sem hefur komið upp í íslenska boltanum lauk í gær. Móðir Kristjáns Flóka Finnbogasonar sá þá til þess að hann spilar með FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×