Innlent

Ríkið sýknað af kröfu olíufélaganna

Birgir Olgeirsson skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið og Samkeppniseftirlitið af kröfu fyrrverandi eigenda olíufélaganna um að fella úr gildi úrskurð Samkeppniseftirlitsins í olíusamráðsmálinu svokallaða. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greinir frá þessu á vef sínum.

Félögin eru Ker(Essó), Olís og Skeljungur.

Olíusamráðsmálið hófst 18. desember árið 2001 þegar lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum Skeljungs, Olís og Essó ásamt starfsmönnum samkeppnisstofu og lögðu þar hald á gögn vegna rannsóknar á brotum gegn neytendum með víðtæku og ólögmætu samráði um verðlagningu.

Rannsókn málsins tók þrjú ár og tók til samráðs frá árinu 1993 til 2001. Þremur árum síðar sektaði Samkeppnisráð olíufélögum um samtals tvo milljarða og 525 milljónir króna en talið var að félögin hefðu hagnast um 6,5 milljarða króna á samráðinu. Olíufélögin vísuðu málinu til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem úrskurðaði að sektin skyldi lækkuð í einn og hálfan milljarð króna.

Í mars árið 2012 felldi Héraðsdómur Reykjavíkur úr gildi ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála og var íslenska ríkinu gert að greiða olíufélögunum sektina upp á einn og hálfan milljarð króna til baka. Lá fyrir að olíufélögin hefðu haft með sér ólöglegt samráð en ekki hefði verið hægt að sakfella eða sekta þau þar sem málið hefði bæði verið rannsakað af lögreglu og samkeppnisyfirvöldum. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar sem vísaði málinu aftur í hérað og féll dómur í málinu í dag.


Tengdar fréttir

Umfang olíusamráðs verður minna hjá Ríkissaksóknara

Meðferð Ríkissaksóknara á samráði olíufélaganna lýkur í haust. Engin fordæmi eru fyrir því að einstaklingar séu sóttir til saka fyrir brot af þessu tagi. Umfangið verður minna en hjá samkeppnisyfirvöldum.

Olíusamráð: Ríkið endurgreiði einn og hálfan milljarð

Héraðsdómur felldi í dag úr gildi ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála um sektargreiðslur vegna olíusamráðsins svokallaða árin 1993 til 2001. Íslenska ríkinu er því gert að greiða olíufélögunum Olís, Skeljungi og ESSO, einn og hálfan milljarð króna. Eftir úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála í ársbyrjun 2005 greiddu félögin sektina, með fyrirvara um lögmæti hennar. Tekist hefur verið á um málið fyrir dómstólum allar götur síðan.

Samráðið um svarta gullið

Samtök olíuframleiðsluríkja, OPEC, ráða lögum og lofum í verðmyndun á olíu í heiminum. Framleiðslukvótar þeirra eru án efa stærsta olíusamráð sögunnar enda græða þau á tá og fingri.

Rannsókn lögreglunnar lokið

Rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á meintu ólöglegu samráði olíufélaganna er lokið. Meira um málið í fréttum NFS klukkan tólf.

Ker þarf að greiða bætur vegna olíusamráðs

Ker, sem áður átti Esso, var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmt til að greiða Sigurði Hreinssyni, húsasmiði frá Húsavík, 15.000 krónur í bætur með vöxtum. Sigurður krafði félagið um bætur vegna bensíns sem hann keypti á því tímabili sem meint samráð olíufélaganna stóð yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×