Sport

Rak sundlaugarstrákinn á Twitter

Sumlin kunni ekki að meta hnýsni sundlaugarstráksins.
Sumlin kunni ekki að meta hnýsni sundlaugarstráksins. vísir/getty
Menn þurfa að fara varlega á Twitter. Það lærði ungur nemandi Texas A&M háskólans á dögunum.

Hann var þá að þrífa sundlaug þjálfara ruðningsliðs skólans, Kevin Sumlin. Þjálfarinn var þá í leit að nýjum varnarþjálfara.

Nemandinn, Rustin McFarland, heyrði í Sumlin í símanum og skrifaði um það á Twitter. Sagði að vonandi væri Sumlin að ráða nýjan varnarþjálfara.

McFarland átti ekki von á því að Sumlin myndi sjá tístið. Sumlin gerði það og svaraði honum á einfaldan hátt: „Þú varst að missa vinnuna þína."

Margir héldu að Sumlin væri að grínast en hann staðfesti daginn eftir að hann hefði rekið sundlaugarstrákinn í alvöru. Í ljós kom síðan að hann hefði í raun verið að ráða nýjan varnarþjálfara í símtalinu umtalaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×