Skoðun

Ingólfur Arnarson var Pírati

Ingólfur Árni Gunnarsson skrifar
Margir kjósendur í Kópavogi velta fyrir sér hvernig atkvæði þeirra sé best varið í bæjarstjórnarkosningunum. Það ætti að vera minni ágreiningur um málefni bæjarstjórnar Kópavogs heldur en landsmálin. Allir flokkar hljóta að geta verið sammála um flesta þætti bæjarmálanna. Við viljum öll:

Góða leik- og grunnskóla og lipra stjórnsýslu sem þjónar bæjarbúum.

Að bærinn sé rekinn með almannahagsmuni að leiðarljósi en ekki sérhagsmuni.

Að þeim skatttekjum sem bærinn innheimtir sé vel varið en ekki sóað í bruðl.

Að bæjarstjórnarmenn hætti að rífast og leysi úr ágreiningi á uppbyggilegan hátt.

Í bæjarstjórnarkosningum er ekki kosið um Evrópusambandið, veiðigjöld eða verðtryggingu. Hefðbundnar átakalínur landsmálanna eiga því miklu síður við í kosningum til bæjarstjórnar heldur en í alþingiskosningum. Þeim sem venjulega kjósa Samfylkingu eða Sjálfstæðisflokk til Alþingis er því óhætt að kjósa Pírata í bæjarstjórnarkosningunum án þess að gefa nokkurn afslátt af skoðunum sínum í landsmálunum.

Píratar í Kópavogi leggja áherslu á:

Að bæjarfélagið sé rekið fyrir opnum tjöldum.

Að bæjarbúar hafi aukið val um á hvern hátt þjónusta bæjarins er veitt.

Að stóru málin og átakamálin fari í íbúakosningar.

Samkvæmt nýlegri alþjóðlegri könnun um spillingu í stjórnsýslunni kemur Ísland verst út af öllum Norðurlöndunum. Við getum ekki fullyrt um hvernig staðan er í stjórnsýslunni í Kópavogi en grunnstoðir Pírata, gegnsæi og sjálfsákvörðunarréttur, eru hvor tveggja öflugar forvarnir gegn spillingu.

Flest okkar vilja hafa eitthvað um það að segja hvernig stór mál í samfélagi okkar eru til lykta leidd. Fulltrúalýðræði þar sem kjósendur fá bara að segja skoðun sína á fjögurra ára fresti er úrelt útfærsla á hugmyndinni að fólkið skuli ráða. Með netvæðingu íslenskra heimila er auðveldara og ódýrara að koma á íbúakosningum um stór mál bæjarfélaga. Þannig vilja Píratar færa valdið til fólksins.

Sagnfræðingar telja að uppgangur Haralds hárfagra í Noregi hafi flýtt fyrir landnámi á Íslandi því margir norskir höfðingjar sættu sig ekki við að beygja sig undir miðstýrt vald konungsins. Það má því leiða líkur að því að Ingólfur Arnarson og aðrir landnámsmenn hafi verið fyrstu Píratarnir á Íslandi. Við erum hins vegar svo heppin að þurfa ekki að flýja land til að fá að hafa eitthvað um okkar mál að segja á næsta kjörtímabili. Við getum einfaldlega kosið Pírata til bæjarstjórnar.




Skoðun

Sjá meira


×