Handbolti

Ásgeir Örn: Þetta var lélegt hjá mér

Henry Birgir Gunnarsson í Álaborg skrifar
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Kári Kristjánsson eftir leikinn.
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Kári Kristjánsson eftir leikinn. fréttablaðið/Daníel
„Lokasóknin var sett upp þannig að við áttum að skora. Mér fannst ég fá færi og því tók ég skotið. Kannski var skotið of snemmt og kannski var Kári frír á línunni. Hann var líklega frír. Þetta var lélegt hjá mér,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson sjálfsgagnrýninn, en hann tók lokaskotið í leiknum í gær en það fór í vörnina.

Ísland tók ákveðna áhættu í lokasókninni með því að taka markvörðinn af velli og setja aukamann í sóknina. Sem betur fer fór skot Ásgeirs út af því annars hefðu Ungverjar getað skorað blóðugt mark.

„Við nýttum ekki vel að vera manni yfir í leiknum. Spiluðum ekki nógu vel í sókninni. Við gátum gert betur en þetta og fengum fullt af tækifærum til þess að klára leikinn þannig að þetta er frekar svekkjandi.“ Liðið er komið áfram í milliriðil þannig að það mátti gleðjast yfir einhverju.

„Við lítum samt á þetta sem tapað stig en eitt er betra en ekkert. Við munum bæta fyrir þetta síðar.“


Tengdar fréttir

Aron: Svekktur að hafa ekki unnið leikinn

"Þetta var gríðarlega erfiður leikur. Við byrjuðum illa og vorum allt of passífir í vörninni," sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari eftir spennuleikinn mikla gegn Ungverjum.

Hefndin þarf að bíða betri tíma - myndir

Íslenska handboltalandsliðinu tókst ekki að hefna fyrir tapið á Ólympíuleikunum í kvöld þegar liðið gerði 27-27 jafntefli við Ungverjaland í 2. umferð B-riðils á EM í handbolta í Danmörku.

Arnór: Eigum að vinna þetta lið

Strákarnir okkar voru þungir á brún eftir leikinn gegn Ungverjum. Þeir eru komnir áfram í milliriðil en vildu sigur og ekkert annað í kvöld.

Kári: Verðum að hafa þor til þess að sækja á markið

"Getum við ekki bara verið sáttir með þetta? Einn punktur í leik þar sem þetta var orðið svolítið erfitt hjá okkur,“ sagði Fenrísúlfurinn Kári Kristján Kristjánsson eftir jafnteflið gegn Ungverjum.

Aron: Var brjálaður í leikslok

Aron Pálmarsson fór strax í kælingu eftir leikinn í kvöld og var með kælingu á hné og niður er blaðamaður ræddi við hann. Hann sagðist vera í lagi þó svo hann finndi fyrir verkjum.

Guðjón: Hárrétt ákvörðun hjá Ásgeiri

"Þetta var kaflaskiptur leikur. Margir hlutir gengu vel. Það sem gekk vel fór svo að ganga illa. Við áttum möguleika á sigri en gekk því miður ekki," sagði landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson eftir jafnteflið gegn Ungverjum í kvöld.

Aron: Þetta stig gæti orðið mjög dýrmætt í framhaldinu

Íslenska handboltalandsliðið var grátlega nálægt því að vinna annan leik sinn í röð á EM í Danmörku þegar liðið gerði 27-27 jafntefli við Ungverja í Álaborg í kvöld. Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari sá þetta bæði sem unnið og tapað stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×