Golf

Úlfar: Mikilvægari hlutir framundan hjá Kristjáni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari.
Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari. Vísir/Daníel
Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari í golfi, segist ekkert hafa á móti Kristjáni Þór Einarssyni, kylfingi úr GKJ, sem vandaði landsliðsþjálfaranum ekki kveðjurnar í viðtali við Vísi fyrr í dag.

Kristján furðar sig á landsliðsvalinu fyrir Evrópumótið í byrjun næsta mánaðar. Hann segir Úlfar hafa eitthvað persónulegt á móti sér og hann fái ekki tækifæri með landsliðinu á meðan hann er við stjórnvölinn.

„Ég hef alls ekkert á móti honum. Þvert á móti hef ég mikið á lit á honum sem golfara og finnst hann hörkukylfingur. Ég hef heldur alls ekkert á móti honum sem persónu. Það er bara alrangt og leiðinlegur misskilningur,“ segir Úlfar í samtali við Vísi.

Kristján Þór er annar á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar en sá efsti, Ragnar Már Garðarsson er sjálfvalinn. Næstu fjórir menn í liðið eru svo þeir fjórir sem eru fyrir neðan Kristján á stigalistanum.

„Við erum með framtíðarpælingar í huga og þetta er það lið sem ég veðja á. Þetta eru þeir einstaklingar sem ég tel vera besta í þetta lið,“ segir Úlfar.

Kristján Þór ásakaði Úlfar einnig um að velja sig ekki því hann væri að eignast annað barn og væri í raun búinn að ákveða að hann væri ekki með hugann við golfið.

„Það er algjörlega í hans höndum hversu langt hann ætlar í íþróttinni. Barnseignir þurfa ekki að vera fyrirstaða. Ég taldi þetta bara ekki rétta tímapunktinn fyrir hann að vera í liðinu. Það er ýmislegt annað framundan hjá honum sem er mikilvægara hjá honum,“ segir Úlfar Jónsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×