Viðskipti innlent

Jan Mayen-olían komin á auðlindareikning Noregs

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jan Mayen-svæðið.
Jan Mayen-svæðið.

Olíustofnun Noregs hefur í fyrsta sinn reiknað áætlaðar olíulindir á Jan Mayen-svæðinu inn í opinbert mat um framtíðarauðlindir Norðmanna.  Nýtt mat um vinnanlega olíu á norska landgrunninu hækkar um 586 milljónir rúmmetra milli ára og standa suðausturhluti Barentshafs og Jan Mayen-svæðið fyrir 60% af aukningunni, að því er fram kemur í fréttatilkynningu Olíustofnunarinnar.



Olíustofnunin hefur orð á sér fyrir að vera afar varkár og íhaldssöm í birtingu upplýsinga af þessu tagi. Að stofnunin skuli nú taka Jan Mayen-svæðið inn undirstrikar að sérfræðingar stofnunarinnar telja að þegar liggi fyrir nægilega traustar vísindalegar niðurstöður sem leggja megi til grundvallar við mat á vinnanlegum auðlindum í olíu og gasi á svæðinu.



Matið er í samræmi við sérstakt auðlindamat um norska hluta Jan Mayen-svæðisins sem Olíustofnunin birti í byrjun síðasta árs. Það þóttu gleðifréttir fyrir Íslendinga, bæði vegna 25% nýtingarréttar Íslands á stórum hluta svæðisins, og einnig vegna nálægðar og skyldleika við íslenska hluta Jan Mayen-svæðisins, sem Íslendingar kalla Drekasvæðið.



Talan fyrir Jan Mayen-svæðið, sem nú fór inn á auðlindareikning Noregs, er 90 milljónir rúmmetra. Það er ein lægsta talan úr nokkrum sviðsmyndum sem birtar voru í fyrra en sú hæsta var upp á 640 milljónir rúmmetra, sem eru um fjórir milljarðar olíutunna.



Íslensk stjórnvöld hafa ekki birt samsvarandi mat á kolvetnisauðlindum Íslendinga. Olíuleitarfélagið Eykon áætlaði hins vegar í haust á grundvelli norska matsins hvað væri á Drekasvæðinu og taldi auðlindirnar þar helmingi meiri en þær sem væru Noregsmegin, eða sex milljarðar olíutunna.


Tengdar fréttir

Hlutfall olíu talið 80% á Jan Mayen-svæðinu

Olíustofnun Noregs telur að 80 prósent kolvetnisauðlinda við Jan Mayen séu olía og aðeins 20 prósent gas, öfugt við það sem talið hefur verið til þessa. Stjórnarformaður Kolvetna ehf. segir þetta mjög góðar fréttir og þá telur hann íslenska hluta svæðisins ívið betri en þann norska. Tveim mánuðum eftir að íslensk stjórnvöld úthlutuðu fyrstu sérleyfunum á Jan Mayen-hryggnum birtir Olíustofnun Noregs fyrsta opinbera matið á auðlindum svæðisins, þess efnis að Noregsmegin megi gera ráð fyrir að finnst allt frá engri olíu og upp í fjóra milljarða tunna.

Miklar gleðifréttir fyrir Íslendinga

Olíulindir á norska hluta Jan Mayen-svæðisins, sem Íslendingar eiga rétt á að nýta að hluta, gætu verið yfir fimmtíu þúsund milljarða króna virði, samkvæmt mati sem Olíustofnun Noregs birti í gær. Stjórnarformaður Íslensks kolvetnis segir þetta miklar gleðifréttir. "Nýtt olíuævintýri í norðri" segir í fyrirsögn norska Finansavisen í dag um fréttirnar en þær fjalla einnig um nýtt mat á hluta Barentshafs. Matið yfir norska hluta Jan Mayen-svæðisins snertir Íslendinga vegna 25 prósenta nýtingarréttar, og einnig vegna nálægðar og skyldleika við íslenska Drekasvæðið.

Telja Drekann geyma sex milljarða olíufata

Norskir olíujarðfræðingar telja að íslenska Drekasvæðið geymi sex milljarða olíufata og þar geti fundist risaolíulindir, svo kallaðir fílar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×