Besta jólamyndin fer á forsíðu 11. desember 2013 17:00 Þórir ó. Tryggvason átti sigurmyndina í jólaljósmyndakeppni Fréttablaðsins í fyrra. Mynd/Þórir Ó Tryggvason
Fréttablaðið blæs til samkeppni um bestu jólaljósmyndina sem hefst í fyrramálið. Í verðlaun fyrir bestu myndina er glæsileg Sony 20,1 megapixla myndavél með 16-50mm linsu frá Sony Center. Besta myndin verður einnig á forsíðu Fréttablaðsins á aðfangadag og fleiri myndir úr keppninni birtast í blaðinu. Þátttakendur hlaða upp myndum sínum á ljosmyndakeppni.visir.is, líkt og í fyrri ljósmyndakeppnum haustins, þar sem þemun voru Náttúra, Útivist og Haust. Innsendar myndir birtast hér á Vísi og lesendur geta kosið bestu myndina. Niðurstaðan í kosningunni gildir helming á móti áliti dómnefndar blaðsins. Hver þátttakandi skal senda inn eina mynd og skal hún hafa verið tekin nú í aðdraganda jólanna. Óheimilt er að senda inn eða eigna sér ljósmyndir sem aðrir en sendandi hafa tekið. Myndinni þurfa að fylgja nafn höfundar og upplýsingar um heimilisfang, netfang og símanúmer. Jólaljósmyndakeppnin stendur frá deginum í dag, 12. desember, fram að miðnætti fimmtudaginn 19. desember. Tilkynnt verður um úrslit á aðfangadag.
Jólafréttir Mest lesið Svona gerirðu graflax Jól Sósan má ekki klikka Jól Látlaust og stílhreint í ár Jólin Heimagerðar jólagjafir geta líka slegið í gegn Jól Jólameðlæti Marentzu Jól Jesúbarnið er dýrmætasta gjöfin Jól Samviskulegar smákökur Jól Skrautskrifar jólakortin af natni Jól Lúxusdvöl og innkaup í Keflavík Jól Jólavættirnir Surtla og Sighvatur á vegg Safnahússins Jól