Innlent

Hótaði fjölskyldunni lífláti: „Ég ætla að byrja á þér“

Fanney Birna Jónsdóttir og Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Stefán Logi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Stefán Logi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. mynd/gva
Aðalmeðferð í Stokkseyrarmálinu fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur og í morgun var fjallað um ákæru á hendur Stefáni Loga Sívarssyni fyrir líkamsárás gegn fyrrverandi kærustu sinni og barnsmóður. Stefán Logi er einnig ákærður fyrir að hafa ráðist inn á heimili foreldra hennar í sumar og hótað fjölskyldunni lífláti. „Ég ætla að byrja á þér,“ segir faðir barnsmóðurinnar að Stefán Logi hafi sagt við sig, og bitið sig síðan í fingurna.

Stefáni Loga var gert að víkja úr dómsal á meðan barnsmóðirin gaf skýrslu, en hann fékk að koma aftur inn þegar röðin var komin að fjölskyldu hennar. Móðirin lýsti árásinni sem átti sér stað á sunnudagskvöldi í júlí.

„Ég var bara inni í eldhúsi og maðurinn minn inni í stofu. Yngsta barnið mitt var minnir mig nýfarið að sofa,“ segir móðirin, en barnsmóðirin og systir hennar voru ekki heima.

„Það er dálítið mikill gegnumgangur á heimilinu. Ég á fjögur börn og barnabarn, og útihurðin er oftast ólæst. Skyndilega er hurðin rifin upp og Stefán kemur inn þarna askvaðandi og ég labba í átt að útidyrunum. Hann er í þannig ástandi, hann er á hlýrabol, reiður, og krefst þess að fá að vita hvar dóttir mín er.“

Stefáni Loga var gert að víkja úr dómsal í morgun á meðan barnsmóðirin gaf skýrslu.mynd/gva
Faðirinn elti Stefán með eldhúshníf

Móðirin segist hafa þekkt Stefán í mörg ár og að hann tali venjulega ekki eins og hann gerði þetta kvöld. Hún segir hann hafa verið ógnandi og að sér hefði ekki liðið vel.

„Akkúrat í þessu kemur maðurinn minn og segir „farðu út“, og reyndi að ýta honum út. Það kom til handalögmála og ég var á bak við þá tvo. Ég segi Stefáni að fara út og láta okkur í friði, að dóttir okkar sé ekki hér. Það gekk ekki svo auðveldlega.“

Móðirin segir að sig minni að þarna hafi yngsta dóttirin komið og staðið stjörf af hræðslu. „Hún þekkir hann vel, hefur aldrei séð hann svona reiðan og æstan, þannig að hún bara stóð þarna. Það urðu einhver handalögmál þarna. Eitthvað var sagt. Mig minnir að það hafi verið sagt: „Ég ætla að drepa þig, eða drepa dóttur þína.“ Hann sagði eitthvað í þessa átt.“

Hún segir eiginmann sinn hafa reiðst mjög, og að þegar Stefán Logi hafi farið út hafi eiginmaðurinn náð í eldhúshníf og farið á eftir honum.

„Mér var nú ekki sama um þetta og fór á eftir honum. Fullt af nágrönnum þarna fylgdust með. Það bíður bíll þarna og stelpa við stýrið, og strákur kemur út. Ég heyri Stefán segja: „Bakkaðu á hann“. Maðurinn minn var fyrir aftan bílinn. Hún fór af stað og ætlaði að bakka á hann. Stefán fer inn í bílinn og þau fara burt og þá var þetta búið í þetta skiptið.“ Systir barnsmóðurinnar staðfesti atburðarásina í dómsal í morgun en sagðist ekki hafa séð föður sinn ota hnífnum í átt að Stefáni Loga.

Aldrei velkominn á heimilið

Móðirin segir Stefán Loga aldrei hafa verið velkominn inn á heimilið og að hann hafi vitað það. „Hann kom stundum og skilaði dóttur sinni eða náði í hana, og kom eiginlega aldrei þarna nema inn í anddyrið. Hann vissi það að hann var ekkert velkominn.“

Móðirin sagði einnig frá annarri árás inn á heimilið sem átti sér stað í mars. Þar er Stefáni Loga gefið að sök að hafa skallað föður barnsmóður sinnar og bitið hann. Einnig er hann sagður hafa valdið skemmdum á bifreið föður barnsmóður sinnar með því að sparka í afturhurð hans

 Hún segir Stefán Loga hafa komið aftur um kvöldið og þá hafi dóttir sín (barnsmóðirin) farið út og talað við hann. „Ég hélt að hann ætlaði að ráðast á hana en þá gerðist ekki neitt og þau eiga bara einhver orðaskipti. „Þú ert algjör aumingi að koma svona fram,“ og hún hrækti á hann og hann á hana, og svo sparkar hann í bílinn.“

Ekki Evrópumeistari í júdó

Móðirin segist ekki hafa séð Stefán Loga skalla eiginmann sinn eða bíta hann, en það fullyrti faðirinn fyrir héraðsdómi í morgun.

„Ég var heima og þá var konunni minni ógnað,“ segir faðirinn um árásina í mars. Hann var að leita að dóttur minni og sagði mér að hann ætlaði að gera henni eitthvað. Skaða hana eða eitthvað svoleiðis.“ Þá segir faðirinn að Stefán Logi hafi sagt: „Ég ætla að byrja á þér,“ og bitið sig í fingurna á vinstri hönd og skallað sig.

Faðirinn segist hafa farið til læknis út af fingrunum, og að hann hafi fundið fyrir verkjum í andliti eftir árásina. Þegar verjandi Stefáns Loga spurði föðurinn hvort hann væri Evrópumeistari í júdó, eins og Stefán Logi hélt fram við skýrslutöku í gær, sagði hann að svo væri ekki. „Nei það er ekki rétt.“


Tengdar fréttir

Íbúar á Stokkseyri skelkaðir

Íbúar á Stokkseyri eru skelkaðir eftir að manni var haldið nauðugum í húsi bænum þar sem hann var pyntaður af ofbeldismönnum í sólarhring. "Sárgrætilegt og hræðilegur atburður", segir eigandi Shell skálans, þar sem maðurinn kom illa særður inn.

Gríðarleg leit vegna meints ofbeldishrotta - fjölskyldufólk stöðvað

Tveir menn voru handteknir við Laugarvatn í gærkvöldi eftir viðamiklar aðgerðir lögreglu. Málið tengist hrottalegri líkamsárás. Sjónarvottur við Laugarvatn var á leiðinni heim með fjölskyldu úr sumarfríi þegar við þeim blasti þyrla og lögregluleit.

Stefán Logi járnaður í Miðhúsaskógi

Stefán Logi Sívarsson var handtekinn við sumarbústað í Miðhúsaskógi fyrir stundu. Sérsveit lögreglu stóð að handtökunni, en fimm lögreglubílar voru á staðnum og viðbúnaður mikill.

Stunginn með notaðri sprautunál

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir Stefáni Loga Sívarssyni, sem grunaður er um að hafa tekið þátt í grófum líkamsárásum og frelsissviptingum síðastliðið sumar, meðal annars í sumarbústað nálægt Stokkseyri. Rétt er að vara við lýsingum í þessari frétt.

Grunaðir um minnst þrjár hrottafengnar líkamsárásir

Stefáni Loga Sívarsson,sem lögregla handtók í Miðhúsaskógi í gær, er meintur höfuðpaur í hrottafengnu líkamsárásarmáli á Stokkseyri. Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Hópurinn er grunaður um tvær árásir til viðbótar.

Gæslulvarðhald framlengt yfir Stefáni Loga

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í morgun gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Stefáni Loga Sívarssyni til 2. október vegna aðildar að minnst þremur alvarlegum líkamsárásarmálum.

Neituðu sök á hrottafengnum líkamsárásum

Þingfesting fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli gegn Stefáni Loga Sívarssyni og fjórum öðrum mönnum fyrir tvær hrottafengnar líkamsárásir, mannrán og langvinnar pyntingar um mánaðamót júní og júlí síðastliðinna.

Sjónarvottar segja fórnarlambið hafa verið vankað og blóðugt

Fórnarlambið var illa til reika og vankað. Hann var blóðugur, með marga skurði í andliti, bólginn og átti erfitt með að tala og var illskiljanlegur vegna þess hversu bólginn hann var. Einnig hékk laus flipi úr neðri vör mannsins á stærð við tíu krónu pening.hvern tíma.

Fórnarlamb mannráns með sár eftir svipuhögg á bakinu

Lögregla leitar Stefáns Loga Sívarssonar, sem er grunaður um að hafa svipt mann frelsi sínu, farið með hann til Stokkseyrar og beitt hann hrottalegu ofbeldi. Að minnsta kosti tveir menn sitja í varðhaldi vegna málsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×