Viðskipti innlent

Kröfu verjenda í Aurum-máli hafnað

ÞÞ og JHH skrifar
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í þinghaldi í morgun, en Ólafur Þór rekur málið fyrir hönd ákæruvaldsins.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í þinghaldi í morgun, en Ólafur Þór rekur málið fyrir hönd ákæruvaldsins.
Kröfu verjenda í svokölluðu Aurum máli, annars vegar um að hafna framlagningu rannsóknarskýrslu og hins vegar kröfu verjanda Lárusar Welding um frestun ákæru var hafnað í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Þetta kom fram í úrskurði sem Guðjón Marteinsson héraðsdómari kvað upp á tíunda tímanum. Næsta fyrirtaka í málinu er 11. febrúar næstkomandi en þá verður tekin ákvörðun um fresti sem verjendur ákærðu hafa til að skila greinargerðum fyrir þeirra hönd.

Verjendur töldu að framlagning rannsóknarskýrslu saksóknara gengi í berhögg við sakamálalög og fæli í raun í sér skriflegan málflutning en meginreglan er munnlegur málflutningur. Í úrskurðinum segir: „Dómstólar geta ekki, eins og verjendur krefjast, skert forræði ákæruvaldsins til að ákveða hvaða gögn það leggur fram með ákæru til að fullnægja lagaskyldu sinni."

Í málinu eru þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson, sem báðir voru starfsmenn Glitnis, ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd. en fyrirtækið á skartgripakeðjurnar Goldsmiths, Mappin & Webb og Watches of Switzerland. Félagið tengist á engan hátt skartgripaversluninni Aurum í Bankastræti.

Jón Ásgeir er ákærður fyrir hlutdeild í broti Lárusar með því að hafa með fortölum og hvatningu stuðlað að því að brotið var framið.


Sérstakur saksóknari telur að hlutabréfin í Aurum Holdings Ltd. hafi verið keypt á yfirverði. Þannig hafi stjórnendur og starfsmenn Glitnis misnotað aðstöðu sína hjá Glitni með lánveitingunni til FS38 ehf. Pálma og Jóni Ásgeiri til hagsbóta, en hluti endanlegrar lánveitingar til FS38 ehf. rann í vasa Jóns Ásgeirs samkæmt ákæruskjali, eða alls 702 milljónir króna, sem fóru í uppgjör á persónulegum yfirdrætti hans hjá bankanum. FS38 fór í þrot og peningarnir hafa ekki endurheimst með tilheyrandi tjóni fyrir Glitni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×