Lífið

Búnir að borga og gefa ágóðann

góð jólagjöf Hilmar Már Pétursson, Grímur Óli Geirsson og Bjarni Hallgrímur Bjarnason eru meðlimir Basic House Effect.fréttablaðið/stefán
góð jólagjöf Hilmar Már Pétursson, Grímur Óli Geirsson og Bjarni Hallgrímur Bjarnason eru meðlimir Basic House Effect.fréttablaðið/stefán
„Við virkilega viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar," segir Bjarni Hallgrímur Bjarnason.

Viðburðafélagið Basic House Effect, sem er í eigu tveggja átján ára menntaskólanema og plötusnúða, ætlar að gefa allan ágóðann af tekjum sínum frá 1. nóvember fram að jólum til Barnaspítala Hringsins. Upphæðin gæti numið allt að sjö hundruð þúsund krónum.

Þeir félagar, Bjarni Hallgrímur og Hilmar Már Pétursson, stofnuðu félagið fyrir rúmum tveimur árum og hafa spilað á hátt í þrjú hundruð viðburðum, þar á meðal hitað upp fyrir Quarashi á Bestu útihátíðinni í fyrra. Með þeim í teymi eru tæknimenn, ljósmyndarar og fleiri aðstoðarmenn.

„Við byrjuðum í þessu þegar við sáum auglýsta plötusnúðakeppni á netinu. Við tókum þátt og unnum hana. Eftir það byrjuðum við á þremur böllum hjá grunnskólum úti á landi og þá fóru hjólin að snúast. Við urðum sífellt meira bókaðir og það er búið að ganga ótrúlega vel síðan þá," segir Bjarni Hallgrímur. Þeir félagar hafa sankað að sér alls konar græjum og eru meira og minna búnir að borga þær upp núna.

Basic House Effect hefur verið bókað á tíu böll á næstunni í hinum ýmsu grunn- og framhaldsskólum, auk þess sem stór próflokapartí eru fram undan.

„Í tilefni af því að við höfum loksins borgað niður allan okkar eigin kostnað, tveggja ára afmælinu okkar og í þakklætisskyni viljum við gera eitthvað á móti og þakka fyrir þessar frábæru viðtökur með smá jólagjöf frá okkur," segir Bjarni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×